15.4.2010 | 09:13
Eru vættir Íslands að verki?
Einhverjir hafa sagt að vættir landsins væru nú að verki. Sérstaklega beina þeir sjónum sínum að Bretlandi sem verður af tugum milljóna punda vegna röskunar á flugi. Ég heyrði á tal manna um daginn sem sögðu að nú þyrfti sterka norðan eða norðvestan átt til að koma helvítis öskunni til Bretlands, til Gordons Brown! En það er ekki málið þó einhverjir kaupsýslu- og ferðamenn komist ekki leiðar sinnar, málið er að askan frá gosinu getur valdið stórtjóni hér á landi, sérstaklega hjá bændum.
Öllu flugi um Lundúnir aflýst | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Vangaveltur
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
já Ásatrúar menn sendu bölbænir á Bretana
maggi (IP-tala skráð) 15.4.2010 kl. 09:38
Það er einmitt spáð stífri norðanátt á næstu dögum. Þá blæs þessu öllu út á haf og veldur litlu tjóni hér, en flugumferð milli Evrópu og Ameríku mun stöðvast.
IceSave, hvað er það?
Guðmundur Ásgeirsson, 15.4.2010 kl. 10:15
Sammála!
Þetta gos er, greinilega, af völdum Landvætta okkar. Því linnir ekki fyrr en "Brúnki" og þessi hollenski koma skríðandi á öllum fjórum til Bessastaða, með Icesave og Hryðjuverkja skaðabætur í rassvasanum.
Mér skilst að allar "væntingar standi til" að hraunstraumurinn verði "tært" gull (24 karat?) og að þar með sé okkur tryggt sæti í Öryggisráði S.Þ. og Mannréttindastofnuninni,o.s.frv.! Við gætum þá líka lánað Útrásarsnillingunum fyrir því sem þeir skulda okkur ; keypt einkaþotur fyrir forsetann, ríkisstjórnina og formenn stjórnmálaflokka, svo þeir séu ekki upp á aðra komnir þegar þeir þurfa að skreppa til útlandanna í embættiserindum (golf eða afmælisveislur o.s.frv.).Krónan myndi fljúga upp og ég myndi geta keypt mér nýja hrærivél!
Kr´
Agla, 15.4.2010 kl. 11:47
Það er reyndar ekki svo langsótt að ætla að þetta geti styrkt krónuna. Rekstrarstöðvun flugfélaga í Evrópu er nefninlega byrjuð að hafa slæm áhrif á hlutabréfamarkaði og ef þetta veldur miklum samgöngutruflunum er ljóst að það er mikið tjón fyrir hagkerfið í heild. Ef Evran fellur þýðir það styrkingu krónu!
Guðmundur Ásgeirsson, 17.4.2010 kl. 16:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.