21.5.2006 | 10:36
Blak og ennþá vetur
Íslenska kvennalandsliðið í blaki er komið í úrslit í undankeppni Evrópuleika smáþjóða og leikur til úrslita við Kýpur í dag. Liðið vann Skota í fyrsta leiknum 3-0 og Færeyinga í gær 3-1. Glæsilega gert hjá íslenska liðinu. Að öllum ólöstuðum þá fannst mér Karen Gunnarsdóttir vera best í íslenska liðinu í leiknum í gær. Það er langt síðan við höfum átt svona gott lið og hugsið ykkur við eigum hávaxnasta liðið í þessu móti. Nú svo eigum við Norðfirðingar 4 leikmenn, Bobbu, Kristínu, Erlu Rán og Jónu Guðlaugu og 3 aðra, Elsu, Önnu og Natalíu, sem hafa spilað með Þrótti N. Og ekki gleyma að aðstoðaþjálfarinn er Norðfirðingur. Við erum einfaldlega besta blakfélag landsins!
Ekki láta ykkur bregða, það er alhvít jörð það hafa verið snjóél í allan dag. Hvenær kemur sumarið? Þeir sem þykjast eitthvað vita um það segja 10. júní. Veðurfréttamaðurinn sem var í sjónvarpinu í gærkveldi segir þessa norðanátt vara til föstudags.
Það er kominn kosningaskjálfti í marga. Ég er þar á meðal. Þetta er sama tilfinningin og fyrir mikilvæga leiki í blakinu og þessi tilfinning var líka til staðar í handboltanum og þegar við vorum að keppa í fótbolta. Við erum auðvitað Þróttur og núna KFF. Þá vil ég minnast á eitt sem mér hefur lengi verið hugleikið. Af hverju stofnum við ekki ÍBF - Íþróttabandalag Fjarðabyggðar? Mín skoðun er að UÍA sé barn síns tíma, hefur ekki fylgt eftir þörfum dagsins í dag. Og þetta segir manneskja sem var formaður sambandsins og síðar framkvæmdastjóri þess. Ég tel bara einfaldlega að við verðum sterkari heild í nýju sveitarfélagi í einu íþróttabandalagi. Sterkari bæði félags- og fjárhagslega. Nógu eru félögin mörg og verkefni næg. Hugsið þið málið. Sorry - ekkert um pólitík!
Um bloggið
Vangaveltur
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.