24.5.2006 | 09:36
Pólitík
Síðasti sameiginlegri framboðsfundurinn fyrir kosningarnar á laugardaginn var í Egilsbúð í gærkvöldi. Heldur fannst mér hann tilþrifalítill, em ég er kannski alltaf að bera saman kosningaslaginn í gamla daga og nú. Það var dálítið skondið að hlusta á íhaldið dásama það að hafa fengið samgöngu-ráðherra hingað austur á fund. En út úr þeim fundi kom akkúrat ekki neitt. Íhaldinu til hjálpar var svo formaður flokksins og þingflokksformaðurinn og einhverjir fleiri hérna eystra í tvo daga að leggja línurnar.
Línur íhaldsins þ.e. dé listans eru skýrar. Taka sem mest af þeim sem minnst mega sín. Og á meðan fátækt eykst dag frá degi á Íslandi fitnar íhaldið eins og púkinn á fjósbitanum. Ánægt að geta gert þá ríku ríkari og þá fátæku fátækari. Eru menn virkilega svo bláeygðir að halda að íhaldið í Fjarðabyggð sé eitthvað annað en íhaldið sem situr í ríkisstjórn?
Mér finnst erfitt að vera á svona fundum. Spyrja einskis, bara hugsa af hverju spyr fólk ekki að þessu eða hinu. Af hverju spurði enginn oddvita íhaldsins um reynslu hans af sveitarstjórnarmálum. Af hverju spurði enginn oddvita bé listans nánar út í fjölskyldustefnu listans og af hverju spurði enginn oddvita á listans um hvaða tillögur hann hafi flutt á kjörtímabilinu? Kannski vill fólk ekki vita þetta.
Um bloggið
Vangaveltur
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.