Búttaðar randaflugur

Mikið rosalega eru randaflugurnar búttaðar núna. Þær eru ekki svo voðlega margar en það er næstum hægt að villast á þeim og smáfuglum. Allavega gerði kötturinn hans Jeffs, sem alltaf er að þvælast hér í kring, það í dag. Ég sat við tölvuna og var að fylgjast með kettinum þegar hann stökk í loft upp til að góma eina fluguna. Hann stökk að vísu ekki hátt því hann er svo feitur. Svona dansaði hann góða stund, á að hann hélt, fuglaveiðum.

Það er ljóst að framundan eru æsispennandi kosningar. Ekki bara hér í Fjarðabyggð heldur víðast hvar. Best líst mér á útkomuna í Hafnarfirði og á Ísafirði, en þar fara félagshyggjuöflin með sigur af hólmi. Ætli það hafi ekki farið um marga við fréttirnar um bitlingastarfsemi ríkisstjórnarflokkana? Þar fer Framsóknarflokkur fyrir með lang flestar pólitískar stöðuveitingar. Bé listinn í Fjarðabyggð fékk káboj Valgerði í heimsókn í gær. Sjálfsagt til að skerpa á fjölskyldustefnu listans. Það hafa nú margir brosað í laumi að þeirri stefnu og hugsi nú hver sitt.

Getur það verið svo eftirsóknarvert að sitja í sveitarstjórn að menn svífist einskis til að komast þangað. Skipti um flokka eins og ekkert sé og ekki bara það, koma fram sem helsti talsmaður flokksins, eins og Jón Björn, sem hefur ekki enn sagt sig úr Fjarðalistanum! Annars ferst mér ekki að tala um flokkaskipti. Ég gekk einu sinni úr Alþýðubandalaginu en gekk svo í það aftur. Kannski er það eins með Jón Björn hann hefur kannski alltaf verið framsóknarmaður.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vangaveltur

Höfundur

Hulda Elma Guðmundsdóttir
Hulda Elma Guðmundsdóttir
Róttæk vinstri kona. Er fædd og uppalin í Neskaupstað - ekta Nobbari og haldin átthagafjötrum. Er íþrótta- og félagsmálafrík og elska ferðalög.

Tónlistarspilari

Elvis Presley - Blue Christmas

Nýjustu myndir

  • goðanes
  • img471-copy

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband