26.5.2006 | 14:41
Smekkleysi íhaldsins
Það er með ólíkindum hvert kosningarfárið getur leitt menn. Einn gallharður íhaldsmaður sendi tölvupóst á alla starfsmenn Fjarðabyggðar með hvatningu um að kjósa dé listann. Ekki eitt bréf heldur tvö. Þarna er hann akkúrat að gera það sem íhaldið er frægt fyrir að misnota aðstöðu sína. Ég heyrði áðan að hann hefði sent afsökunarbréf, hef samt ekki séð það en séð hin tvö.
Mín skoðun er einfaldlega sú að þessar sendingar hafi hleypt illu blóði í fólk. Því var misboðið, svo ekki sé meira sagt. Fólk úr öllum flokkum, starfsmenn Fjarðabyggðar, hefur aðgang að póstkerfi þess. Það hefur ekki hvarflað að neinum nema íhaldinu að misnota aðstöðu sína svona herfilega.
Um bloggið
Vangaveltur
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.