28.5.2006 | 13:54
Fjarðalistinn ofan á!
Kosningarnar í Fjarðabyggð í gær enduðu vel fyrir okkur í Fjarðalistanum. Mér var svo sem ekki skemmt þegar fyrri tölurnar birtust og Smára vantaði 13 atkvæði til að vera inni, en ég var samt viss um að við fengjum þau þegar utankjörfundaatkvæðin hefðu verið talin. Sem og var. Kjósendur eru engin fífl. Það kaupir enginn atkvæði fyrir pylsu og kók, eða með loforðum um gull og græna skóga, hærri laun leikskólakennara eða hvað allt þetta var. Fólk er skynsamt. Það fól Fjarðalistanum að vera áfram sterkasta stjórnmálaaflið í Fjarðabyggð.
Hvaðan í ósköpunum komu öll þessi íhaldsatkvæði sagði einn frændi minn við mig í morgun. Það er spurning, hvaðan komu þau og hvað kostuðu þau? Starfsfólk Dé listans í Reykjavík og Kópavogi sem nefndir voru sjálfboðaliðar fengu 4.000.- krónur, segi og skrifa fjögur þúsund krónur á tímann! Hvaðan kemur allt þetta fjármagn? Allt efni sem dé listinn í Fjarðabyggð gaf út kom að sunnan. Það var ekki verið að styrkja atvinnu í heimabyggð með prentum, nei stóri bróðir fyrir sunnan sá um sína. Nú er bara að bíða og sjá hverjir mynda meirahluta í Fjarðabyggð. Biðlistinn er farinn í frí, vonandi til frambúðar. Það rignir.
Um bloggið
Vangaveltur
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 160791
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæl og blessuð ELMA,það er ótrúlegt hvað klárinn sækir í kvalinar.í okkar samtölum á síðasta kjörtímabili varstu ekki að tapa þér úr kátínu yfir vinnubrögðum fjarðalistanns.En þrælsóttinn er magnaður! biðlistinn er ekki farinn í frí,og mun bjóða framm aftur.
Ásmundur páll hjaltason (IP-tala skráð) 30.5.2006 kl. 12:40
Sæll Ási. Ég hef ekkert verið kvalin af því að vera fylgjandi Fjarðalistanum. Mér finnst það kostur að ég skuli ekki vera svo blind eða siðlaus að ég sjái ekki gallana á ýmsum vinnubrögðum. Ég hef heldur ekkert legið á þeim. Vonandi verðum við vinir áfram þó ég vonist til að Biðlistinn verði í fríi til frambúðar. Eg.
Hulda Elma Guðmundsdóttir, 31.5.2006 kl. 20:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.