29.5.2006 | 09:37
Mánudagur
Skyldi vera komið sumar? Það er allavega sólskin og stillt veður en hitastigið er ekki hátt. Það verður ekki fyrr en um næstu helgi sem hitinn fer í tveggja stafa tölu, það er að segja ef veðurspár ganga eftir. En það er nú ekki alltaf. Það er hljótt yfir, hamarshöggin frá sjúkrahúsinu eru hljóðnum, alla vega í bili. Það er rétt rúmlega hálft ár þar til sjúkrahúsið verður 50 ára. Svona atburði er ekki hægt að gleyma. Það var 17. janúar 1957, sem vígslan fór fram.
Daginn áður eða 16. janúar kom botnvörpungurinn Gerpir nýr til landsins og ég man vel að við unglingarnir í Gaggó fengum að fara með skipinu til Eskifjarðar til að sækja þingmenn kjördæmisins sem voru viðstaddir vígslu sjúkrahússins. Lang flestir voru drullu sjóveikir í Gerpisröstinni og voru fegnastir þeirri stundu þegar heim var komið. Hugsið ykkur það þrekvirki sem heimamenn réðust í þegar sjúkrahúsið var byggt. Og hvaða þýðingu staðsetning þess hafði að segja fyrir allan þann fjölda sjómanna sem þá stunduðu veiðar út af Austfjörðum. En þrátt fyrir þetta þá heyrast ennþá þær raddir sem vilja halda því fram að byggja hefði átt sjúkrahúsið á Egilsstöðum. Þá er ég hrædd um að það væri ekki verið það sjúkrahús sem það er í dag. Það var algjörlega að frumkvæði heimamanna sem ráðist var í byggingu sjúkrahússins og rekstur þess var um árabil í þeirra höndum.
Er búin að fá tölvuna í lag en skannerinn virkar ekki. Verð sennilega að fá mér nýjan. Annars er mesta furðu hvað þessi tölva endist, eins og hún hefur verið mikið notuð svo ég tali ekki um prentarann undanfarnar vikur. Nota daginn til að ganga frá ýmsum málum varðandi kosningarnar. Svo bíður lóðin en ég held að það sé það leiðinlegasta sem ég geri.
Um bloggið
Vangaveltur
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ hæ :) Veðrið var einmitt fínt hér í morgun og fram yfir hádegi en svo fór að vinda.
Hlakka til að sjá þig, alltaf velkomin norður þegar við verðum komin inn, vonandi verður það sem fyrst bara:)
Hlakka til að fá féttir af barna barninu:)
Love Elma
Elma (IP-tala skráð) 29.5.2006 kl. 20:16
Takk elskan. Ég er líka í startholunum þegar kemur hringing að sunnan. Á örugglega eftir að koma oft norður - á puttanum!!! Ég og Eyþór!!!
Eg. (IP-tala skráð) 29.5.2006 kl. 23:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.