30.5.2006 | 15:44
Ekki meir um pólitík
Þó að kosningarnar séu búnar er ekki allt búið enn. Sjónarspilið í Reykjavík er það sem hæst ber og vinnubrögðin alveg eftir íhaldinu og bé listanum. Því ekki bauð Framsókn fram þar, eða var það? Jafn pólitísk og ég er finnst mér þær samningaviðræður sem fara í gang að loknum kosningum alltaf minna á hrossakaup, gildir þá engu hver á í hlut. Fjarðalistinn hefur skrifað undir samstarfssamning við Framsóknarflokkinn um áframhaldandi meirihlutasamstarf í Fjarðabyggð. Samningurinn verður kynntur á fundi í Verkalýðsfélagshúsinu á Reyðarfirði í kvöld. Ég er samt ennþá að velta fyrir mér skrifum ýmissa frambjóðenda, sérstaklega þau skrif sem ég skil ekkert í. Ætla ekki að tilgreina þau hér en mun geyma það sem komið hefur á prenti.
Ætli ferðaskrifstofurnar gangi út frá því vísu að allir séu hluti af fjögurra manna fjölskyldu? Ég hef verið að skoða auglýsingar um ferðir til sólarlanda. Öll verð miðast við tvo fullorðna og tvö börn. Ætli kjarnafjölskyldan sé markhópurinn? En þetta gildir líka um ferðir sem þeir sem eldri fara í til dæmis til Kanaríeyja. Kannski get ég stofnað ráðgjafaþjónustu sólarlandaferða. Ef einhverjir eru stakir, eins og sumir, þá gæti ég komið þeim saman, til að fá hagstæðan ferðakostnað.
Ég verð að fara að blogga daglega. Ég hef eignast svo stóran hóp aðdáenda að ég má til. Ekki getur verið að allur sá fjöldi sem fer inn á bloggið mitt sé að leita eftir pólitískum væringum, ég er hætt þeim, þar til næst! Framvegis verður skrifað um allt annað en pólitík, en endilega ekki hætta að koma.
Um bloggið
Vangaveltur
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.