VALGERÐUR & BÚSS

Ég hef alltaf haldið að nafnið Valgerður væri ekki einkaeign Valgerðar Sverrisdóttur. Eða kannski öllu heldur að það væru margir kvenmenn sem bæru þetta heiti. En VALGERÐUR iðnaðaráðherra telur að enginn beri þetta nafn nema hún. Alla vega les ég það út úr blogginu hennar þar sem hún gerir athugasemd við spjald sem borið var í göngu Íslandsvina síðast liðinn sunnudag en á spjaldinu stóð; drekkjum Valgerði ekki Íslandi. Hún VALGERÐUR er sem sagt viss um að átt sé við hana og hefur sent lögreglustjóranum í Reykjavík athugasemd. Ætli búss hafi einkaleyfi á nafninu BÚSS? Ef svo er þá hefur hann í nógu að snúast því út um allan heim eru dagleg mótmæli gegn honum. En hann er nú meiri villimaður en VALGERÐUR og sendir bara stórskotalið gegn þessum and.. Þið vitið að enska orðið bus, er sagt búss. Er þá nokkuð óeðlilegt þótt einhverjir vilji komast um borð? Hefði VALGERÐUR verið skonnorta þá hefði sjálfsagt staðið á skiltinu; sökkvum VALGERÐI, eða ef þetta hefði verið aflaskip hefði staðið á skiltinu; við viljum á VALGERÐI. Orðaleikur eða hvað...

Fór í golf í gær og völlurinn er alveg sallafínn. Grínin svolítið loðin en þau verða ekki slegin alveg strax, grasinu leyft að jafna sig svolítið. Tillaga um að ganga til samninga við Golfklúbb Reyðarfjarðar var borin fram á síðasta fundi núverandi bæjarstjórnar. Hún átti að tryggja ákveðnum flokki fleiri atkvæði. En tillögunni var vísað til næstu bæjarstjórnar. Persónulega finnst mér að Golfklúbbur Eskifjarðar og Golfklúbbur Reyðarfjarðar ættu að sameinast og standa saman að uppbyggingu 18 holu vallar í landi Hólma. Það er algjörlega út í hött að vera með 3 golfvelli í Fjarðabyggð, núverandi. Þetta minnir mig á gervigrasvallaræðið sem gekk í Færeyjum fyrir tveimur áratugum eða svo. Öll íþróttafélögin sem stóðu að vallargerðunum fóru á hausinn. Það er álíka langt á milli staða þar og í núverandi Fjarðabyggð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

bara ad lita vid og fa frettir ad heiman, vid hofum tad mjog gott her, hingad er greinilega ekki bara bodid uppa ferdir fyrir kjarnafjolskylduna en hun sest to her a medal. frabaer stadur, olikur ollum odrum sem eg hef komid til, kvedja fra Lesvos, thin Petra.
forum til Petru a morgun og er med tyggjo sem heitir Elma

Petra (IP-tala skráð) 2.6.2006 kl. 10:16

2 identicon

Sæl elskan mín. Það er gott að heyra að allt gengur vel. Hér var 20 stiga hiti í gær, heldur kaldara í dag en spáir 20 gráðum á morgun. Það er allt gott að frétta. Camilla og Jójann eru enn í biðstöðu, allt gott að norðan, ætla í golfmót á morgun. Ég vissi um borgina Petru en ekki um Elmu tyggjó! Ástarkveðja.

Eg. (IP-tala skráð) 2.6.2006 kl. 10:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vangaveltur

Höfundur

Hulda Elma Guðmundsdóttir
Hulda Elma Guðmundsdóttir
Róttæk vinstri kona. Er fædd og uppalin í Neskaupstað - ekta Nobbari og haldin átthagafjötrum. Er íþrótta- og félagsmálafrík og elska ferðalög.

Tónlistarspilari

Elvis Presley - Blue Christmas

Nýjustu myndir

  • goðanes
  • img471-copy

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband