Hitt og þetta

Skrítið þetta veðurfar. Hér var 20 stiga hiti í gær en núna er bara miklu kaldara, eða tíu gráður. En það spáir vel næstu daga. Alveg er ég yfir mig hissa á öllum þessum sögum um peningaaustur í atkvæðaveiðar í henni Reykjavík. Hef þó frá fyrstu hendi þetta með fjögur þúsund kallinn á tímann hjá íhaldinu, en umræðurnar í Kastljósinu í gærkvöldi um atkvæðaveiðar Bé listans eru ótrúlegar. Þó ekki, ég trúi örvæntingarfullum mönnum til alls. Enda sást það strax að Björn Ingi er ekkert annað en íhaldshækja. Og ég sem ætlaði ekki að skrifa meira um pólitík!

Ég er búin að panta mér far til Reykjavíkur á mánudaginn. Vona að þá verði fætt nýtt barnabarn, ekki mín vegna, heldur foreldranna sem bíða eftirvæntingarfull. Og það er nú svo með okkur konurnar að okkur finnst alveg nóg að ganga með í níu mánuði, þó það bætist ekki við það!

Fór í golf í gær og ætla í mót á morgun. Vonandi dregst ég í það að fara 18 holur, en ég var alveg kúguppgefin eftir þessar 9 í gær. Þó það sé yndislegt að leika golf í góðu veðri er ekki gott að leika í miklum hita. Það er allt í lagi erlendis þar sem maður hefur golfbíl til að skottast á milli teiga. Annars er það ótrúlegt hvað margir eru farnir að nota slíka bíla á golfvöllum hérlendis. En hvað er þá orðið um líkamsræktina sem fylgir golfinu? Spyr sá sem ekki veit.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vangaveltur

Höfundur

Hulda Elma Guðmundsdóttir
Hulda Elma Guðmundsdóttir
Róttæk vinstri kona. Er fædd og uppalin í Neskaupstað - ekta Nobbari og haldin átthagafjötrum. Er íþrótta- og félagsmálafrík og elska ferðalög.

Tónlistarspilari

Elvis Presley - Blue Christmas

Nýjustu myndir

  • goðanes
  • img471-copy

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband