4.6.2006 | 12:52
Ógeðið í Írak og Halldór að hætta
Djöfull er ógeðsleg athæfi bandarískra hermanna í Írak. Enn ein hópaftakan komin í ljós á því er fréttir herma á ófölsuðu myndbandi. Ellefu manns lágu í valnum, fimm börn og þrjár konur. Það var hryllilegt að horfa á fréttina af þessu. Búss lofar, að sannist sekt þeirra sem að þessum voðaverknaði stóðu, verði hengt. Höfum við ekki öll heyrt þetta áður? Það er marg sannað að kanarnir réðust eingöngu inn í Írak vegna olíunar. Það er marg sannað að þar voru engin kjarnorkuvopn. Það er marg sannað að tugþúsundir saklausra borgara hafa af ástæðulausu látið lífið. Undir þetta skrifuðu Davíð og Halldór. Við erum samsek því þeir skrifuðu undir fyrir hönd íslensku þjóðarinnar. Það eru kosningar að ári, vonandi muna kjósendur þá ennþá eftir þessu.
Nú berast þær fréttir að Halldór Ásgrímsson ætli að segja af sér vegna slæmrar útkomu Framsóknar í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum Það heyrast líka þær fréttir að Guðni geri það líka en aðalfréttin hlýtur samt að vera sú að konum í flokknum er ekki treyst til að taka við, t.d. Jónínu Bjartmarz, heldur er Finnur Ingólfsson kallaður til.
Það bendir allt til þess að ég fái nýtt barnabarn í dag. Ferðin á fæðingadeildina í morgun var samt bara plat, þau voru send heim aftur. En svona er lífið, einhvern tímann fæðist barnið.
Um bloggið
Vangaveltur
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.