8.6.2006 | 14:31
Heima er best
Æ, hvað er gott að vera komin heim. Það er öllum mínum nánustu óskiljanlegt hvað mér leiðist í höfuðborginni okkar. Ég fór þangað á mánudaginn til að skoða nýfæddan sonarson, yndislegur pjakkur sem breytist frá degi til dags. Sonardóttir mín, María Mist kom með mér austur og ætlar að vera nokkra daga.
Ég fór auðvitað fyrst í póstkassann. Þar var fjöldinn allur af umslögum, flest með glugga. Ég opnaði þau auðvitað en ég þekki eina ágætis manneskju sem fleygir öllum gluggapósti með þessum orðum, þeir senda mér bara ný! Það var líka í póstinum bréf frá Póstinum. Hugskeyti. Nú vill pósturinn fá þúsund kall frá fólki ef það sendir Hugskeyti í pósti. En er það hugskeyti. Nei alls ekki. Hugskeyti er það sem sent er í huganum ekki rafrænt eða með símtali á næsta pósthús. Það er með ólíkindum hvað ráðamenn stórfyrirtækja með einokunaraðstöðu halda að fólk sé vitlaust! Ég get sent vinum mínum mörg hugskeyti á dag og þau kosta ekki neitt. Það er nóg að hugsa vel til þeirra sem maður vill vel og ansi oft virkar það. Þú hefur hugsað mikið um tiltekna persónu og annað hvort hringir hún, sendir þér mail eða þú hittar hana óvænt. Látið ekki Póstinn, með stórum staf, plata ykkur.
Það er að koma sjómannadagur. Hér áður fyrr var þetta stór og mikil helgi í mínu lífi. Allt var strokið og fínt á föstudögum, terturnar tilbúnar og veislumatur. En ekki lengur. Ég á ekki lengur sjómenn. Nema þá Atla Rúnar og Sigga hennar Elmu, þeir eru sjómenn en það hugsa aðrar konur um þá, en ég sendi þeim auðvitað heillaóskir.
Um bloggið
Vangaveltur
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 160790
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Til hamingju með barnabarnið :) Hafið það gott saman, þið María Mist.
Úrsúla Manda (IP-tala skráð) 8.6.2006 kl. 23:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.