Gagnfræðingurinn frá Grenivík

Nú er mér allri lokið eða næstum því. Aðaltölvan mín sem hýsir nánast allt sem ég hef gert, dó í gærkvöldi. Ef töframaðurinn sem kemur regtlulega til að fara í tölvumálin fyrir mig getur ekki lagað hana, er ég í vondum málum. En ég reyni að vera vongóð.

Gagnfræðingurinn frá Grenivík er nú orðin utanríkisráðherra. Lengi getur vont versnað sagði kerlingin og tek ég undir það. Mér líst ágætleg á nýja iðnaðar- og viðskiptaráðherrann og það hefur gerst sem ég var áður að tala um, Jónína Bjartmarz er orðin ráðherra. Hvað skyldi sá dagur heita þegar konur komast til þeirra valda að geta skipt út ráðherrum eins og kleinum, eins og forsætisráðherrarnir hafan gert að undanförnu. Siv út Siv inn, Sigríður út Jónína inn? Og Jón Kristjáns er að hætta. Það kemur mér ekki á óvart, nú er bara spurningin hvaða framsóknardúx kemur inn fyrir hann. Varla treysta menn á Dagnýju og Birki? En hvað veit ég?

Ég veit að það er sjómannadagur. Hlý og hæglát rigning en við María Mist gerum lítið annað en að leika okkur hér heima. Spila allavega spil og meira að segja ráðum við krossgátur saman. Hún fer heim á morgun og ég mun sakna hennar. Hugga mig við að ég fæ margt fólk í heimsókn í ágúst.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ Elma frænka ég er búinn að vera með vangaveltur um það hver skildi svona fallega mynd og texta eftir í glugganum hjá okkur um daginn,þegar ég sá ljóðið hugsaði ég er þetta kanski frá Elmu, á ég að hryngja, en það er kanski asnarlegt ef þetta er ekki frá henni svo þegar ég sýndi mömmu þetta sagði hún þetta er frá frænku þinni henni Elmu.við Sesar þökkum fyrir okkur þetta var fallega gjöf.
ps.góð síða hjá þér
kv Gitta

Birgitta (IP-tala skráð) 11.6.2006 kl. 22:59

2 identicon

Lítið að þakka frænka. Ég var búin að koma áður og nennti ekki að fara aftur heim með þessa litlu gjöf. Eg.

heg (IP-tala skráð) 11.6.2006 kl. 23:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vangaveltur

Höfundur

Hulda Elma Guðmundsdóttir
Hulda Elma Guðmundsdóttir
Róttæk vinstri kona. Er fædd og uppalin í Neskaupstað - ekta Nobbari og haldin átthagafjötrum. Er íþrótta- og félagsmálafrík og elska ferðalög.

Tónlistarspilari

Elvis Presley - Blue Christmas

Nýjustu myndir

  • goðanes
  • img471-copy

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 160789

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband