13.6.2006 | 17:56
Fyrsti fundur bæjarstjórnar á Sólbrekku
Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar í Fjarðabyggð hinni nýju var haldin á Sólbrekku í Mjóafirði í dag. Fundarstaðurinn er táknrænn fyrir þá samstöðu sem stefnt er að í nýrri Fjarðabyggð, en þessir fundir sem og fundir bæjarráðs verða væntananlega yfirleitt haldnir á Rayðarfirði. Í svæðisútvarpinu var því haldið fram að þetta sé fyrsti fundurinn frá Landnámsöld þar sem Brekkubóndi á ekki sæti í sveitarstjórn. Þessu get ég ekki verið sammála. Ingólfur Sigfússon er varafulltrúi Fjarðalistans í bæjarstjórn og allir sem vilja vita þá koma aðal- og varafulltrúar saman fyrir hvern fund og fara yfir málin. Og talandi um Landnámsöld þá hljóta íbúar á Brekku að hafa átt sinn fulltrúa í sveitarstjórninni þegar íbúafjöldinn í Mjóafirði var um 900! Hugsa sér.
Er að hugsa um að skreppa noður til Huldu Elma um næstu helgi - ef ég kemst með einhverjum. Vonandi hugsar pabbi hennar sér til hreyfings norður.
Um bloggið
Vangaveltur
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 160789
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.