14.6.2006 | 12:29
Oh, lonesome me!
Af hverju dettur mér þessi texti í hug, sem fékk afskaplega eðlilega þýðingu á ástkæra ylhýra málinu. Jú vegna þess að mér leiðist. Leiðist að vera ekki að vinna, leiðist að vera ein, leiðist að geta ekki skroppið hvert sem er, hvenær sem er, þegar ég vil. Á kjarnyrtri og góðri íslensku heitir þetta að vera í sjálfsvorkun. Það er langt síðan ég las að af öllum þeim tilfinningum sem maðurinn hefur er vorkunsemi sé algengasta tilfinningin. En er nokkuð annað að gera en að hrista þetta af sér?
Ég og vinkona mín vorum að ræða um það í síma í gærkvöldi hvað það væri gott að hafa barnabörnin sín hjá sér. Nú á ég tvo barnabörn og tvö barnabarnabörn á Akureyri og tvö barnabörn á höfuðborgarsvæðinu og eitt hér í Neskaupstað. Ég er afskaplega rík því auður er ekki mældur í því sem mölur og ryk getur grandað. Stendur það ekki einhversstaðar?
Nú trúi ég ekki öðru en ég fá einhverja lausn á tölvumálunum mínum í kvöld. Ég var ekki svo framsýn að sjá þetta fyrir og mér finnst hundleiðinlegt að vera skrölta á þessari ferðavél. En er þetta ekki dagurinn í dag. Ferðavélar alltaf og allsstaðar? Ein spurning að lokum. Getur einhver skýrt fyrir mér af hverju þessir ömulegu veðurfréttamenn á NFS standa alltaf fyrir austurhluta landsins þegar þeir flytja veðurfréttir? Vilja þeir ekki láta sjást hvar góða veðrið er?
Til hamingju með daginn Úrsúla Manda!
Um bloggið
Vangaveltur
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 160789
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæl Elma mín! Já ég skil vel að þér leiðist það er ein af þessum leiðinlegu tilfinningum. En það besta við þessar leiðinlegu tilfinningar þá verða þær góðu en betri þegar þær koma og þú átt pottþétt eftir að eiga margar góðar stundir í sumar! Ástarkveðjur frá strumpalandi
Jóna Harpa (IP-tala skráð) 14.6.2006 kl. 16:51
Ja thetta segi eg alltaf thad er naudsynlegt ad lata ser leidast til ad njota betru godu stundanna, eg man ekki betru en thetta hafi verid tekid vel fyrir i bok med Einari Askelli;-) Mer leiddist i gaer enthad var godur dagur i dag. nu fer ad styttart i heimferd ur 3 vikna sumarfrii, baedi jafn gott. Eg hef lika tru a thvi ad thinn timi komi mamma min, kvedja thin Petra
Petra (IP-tala skráð) 14.6.2006 kl. 19:29
Hvað sagði ekki Jóhanna Sigurðar " minn tími mun koma"
heg (IP-tala skráð) 15.6.2006 kl. 01:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.