Það er munur að vera maður og ...

Ég var svolítið hissa þegar ég las skipan í nefndir og ráð í hinni nýju Fjarðabyggð. Þó framboðslistarnir hafi verið þokkalega í jafnvægi hvað kynjahlutfall ræðir er það ekki svo í nefndaskipaninni. Það eru sex aðalnefndir eða ráð á vegum sveitarfélagsins. Karlmenn eru formenn fjögurra þeirra en konur tveggja. Það er engin kona í hafnarnefnd sennilega vegna þess að karlmenn þykjast hafa meira vit í þeim efnum en konur. Konur eru í meirihluta í tveimur mjúkum nefndum, fræðslu- og menningarnefnd. Það vekur líka furðu mína að sjá ekki efstu menn Bé og Dé lista í nefndum. Og svo eru auðvitað forseti bæjarstjórnar og formaður bæjarráðs karlmenn. Já það er munur að vera maður og …

Nýtt Snæfell var í póstkassanum í morgun. Flott blað og vel unnið. Það eina sem ég get sett út á er að það skuli ekki vera myndatextar nema bara þar sem stjórnin og framkvæmdastjórinn eru á! Og Austurglugginn var líka í póstkassanum. Enn með þriggja lína fyrirsagnir um ekki neitt. Strákar mínir í Guðs bænum farið þið að laga þetta.

Fór í golf í gærkveldi. Um 15 stiga hiti og völlurinn frábær. Það er fátt betra en vera á Grænanesvellinum á góðum stundum. Hefði sennilega verið farin fyrr inn á völl hefði ég vitað að þar er hægt að horfa á Sýn. Sem sagt að fylgjast með HM í Þýskalandi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir kveðjuna :)

Úrsúla Manda (IP-tala skráð) 15.6.2006 kl. 21:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vangaveltur

Höfundur

Hulda Elma Guðmundsdóttir
Hulda Elma Guðmundsdóttir
Róttæk vinstri kona. Er fædd og uppalin í Neskaupstað - ekta Nobbari og haldin átthagafjötrum. Er íþrótta- og félagsmálafrík og elska ferðalög.

Tónlistarspilari

Elvis Presley - Blue Christmas

Nýjustu myndir

  • goðanes
  • img471-copy

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 160789

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband