16.6.2006 | 09:52
Starfslokasamningar og þjóðhátíð
Þá hefur ný ríkisstjórn tekið við, þriðji forsætisráðherrann á þremur árum og svo er manni sagt að allt sé í lukkunnar velstandi! Mér sýndist fyrrverandi umhverfisráðherra ekkert vera glaður að yfirgefa ráðherrastólinn og finnst mér það óréttlátt að láta hana fara. Hún hefur staðið sig vel og eflaust gerir Jónína Bjartmarz það líka. Halldór Ásgrímsson ætlar að ganga fjöll og passa barnabörnin, hann ætlar ekki í Seðlabankann, en til hvers. Hann hefur um 700.000 í eftirlaun á mánuði af því að hann var forsætisráðherra í rúmt ár. Það hefur Davíð Oddsson líka + launin sem Seðlabankastjóri. Sérréttindi þingmanna og ráðherra eru svo mikil að það gildir því að þeir, ef við tökum tvo fyrrnefndu sem dæmi, að þeir hafi fengið 90 100 milljónir í starfslokasamning. Það eru níu fyrrverandi þingmenn og ráðherrar sem fá full eftirlaun en eru samt í öðrum vellaunuðum störfum. Gott hjá Halldóri að hætta áður en hann gat efnt loforðið um að breyta þessu. Haltu kjaft kerling og haltu áfram að skúra.
Ætla að skreppa til Akureyrar yfir helgina, ekkert blog fyrr en á sunnudag eða mánudag. Látið ykkur ekki leiðast. Gleðilega þjóðhátíð. Vitið þið annars að 17. júní er ekki lögskipaður frídagur? Þjóðhátíðardagurinn sjálfur!
Um bloggið
Vangaveltur
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Góða skemmtun fyrir norðan og gleðilega þjóðhátíð!
Úrsúla Manda (IP-tala skráð) 16.6.2006 kl. 14:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.