20.6.2006 | 20:27
Þarf kynskiptiaðgerð til?
Ungar sjálfstæðiskonur í Reykjavík eru óánægðar með skipan í nefndir og ráð á vegum borgarinnar og spyrja hvort konur þurfti í kynskiptaaðgerð til að komast í stjórn Orkuveiti Reykjavíkur. Þetta er athyglisverð spurning og í raun snýst hún ekki eingöngu um stjórn OR, sem til þessa hefur látið framleiða ömurlegustu sjónvarpsauglýsingu sem sést hefur, hún getur varðað flest öll stórfyrirtæki landsins. Meira að segja kaupfélögin á sínum tíma voru treg til að kjósa konur í sínar stjórnir og þótti það fréttnæmt þegar kona var fyrst kosin í stjórn Kaupfélags Héraðsbúa. Af hverju skyldi þetta stafa. Óttast karlar að verða undir í valdabaráttunni og standa því saman um að kjósa hvern annan? Þetta er í raun rannsóknarefni því hver er körlunum nær en sú sem bar þá undir belti og ól þá?
Sagt hefur verið að konur séu konum verstar. Hvað til er í því veit ég ekki en það hlýtur að vera okkur að kenna að mörgu leyti hvað lítið miðar í jafnréttisbaráttunni. Mér hefur oft fundist að ákveðinn hópur ekki kvenna sækist eftir jafnrétti heldur vilja þær yfirráð. Þetta er bara það sem er að gerast í karlasamfélaginu. Er ekki kominn tími til að við breytum þessu? Þetta hefði ég kannski átt að skrifa í gær. En góð vísa er aldrei of oft kveðin.
Bókasafnið lokar í 6 vikur í sumar. Hvað er að þeim sem stjórna þessu. Lesa þeir kannski ekkert eða eru bara með einhverjar bækur á náttborðinu hjá sér til að geta svarað ef einhver kynni að spyrja: Hvaða bók ert með á náttborðinu hjá þér? Hvað sagði ekki Mark Twain Manneskja sem les ekki góðar bækur hefur ekkert fram yfir manneskju sem er ólæs.
Um bloggið
Vangaveltur
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Er ekki allt í lagi... loka bókasafninu í 6 vikur?! Jesús! Hver stjórnar þessu eiginlega? Annars keypti ég mér bókina "Við enda hringsins" á vellinum. Er reyndar ekki byrjuð á henni, en er það ekki bókin sem þú varst alveg límd yfir? Hlakka til að byrja á henni.
Alveg sammála þér með auglýsinguna. Klárlega lélegasta auglýsing ever!!
Úrsúla Manda (IP-tala skráð) 20.6.2006 kl. 20:39
Ég hef verið límd yfir svo mörgum bókum um æfina en Við enda hringsins er virkilega góð. Eg.
Elma (IP-tala skráð) 20.6.2006 kl. 23:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.