21.6.2006 | 16:45
Sumarbros
Þegar ég var yngri, vóg ég nokkrum kílóum minna. Ég þurfti aldrei að halda maganum inni þegar ég fór í þröngan kjól. En nú, þegar ég er orðin eldri, hefur líkami minn brotist til frelsis. Og um þann hluta hans sem einu sinni var mitti, eru þægileg teygjanleg efni. Ítölsku skórnir þurfa að vera tveimur númerum stærri en áður, ef ég kem þá fótunum yfirleitt í þá, og skrefbótin á sokkabuxunum sígur allt of oft niður undir hné.
Ég hef lært, að óháð því hvernig samband okkar er við foreldra okkar, komum við til með að sakna þeirra, þegar þau eru horfin á braut. Ég hef lært, að það að verða sér úti um peninga og hluti, er ekki það sama og að skapa sér líf. Ég hef lært, að af og til býður lífið okkur upp á annað tækifæri.
Ég hef lært, að maður getur ekki farið í gegnum lífið með hornabolta-hanska á báðum höndum. Öðru hvoru verðu maður líka að gefa boltann til baka. Ég hef lært, að þegar ég ákveð eitthvað beint út frá hjartanu, þá hef ég yfirleitt hitt á hina einu réttu ákvörðun. Ég hef lært, að þó að ég sé sár, þurfi ég ekki að særa aðra. Ég hef lært, að á hverjum degi eigi maður að rétta öðrum höndina. Allir þurfa hlýjar hugsanir og vinalegt klapp á axlirnar. Ég hef lært, að ég er alltaf að læra eitthvað nýtt. Ég hef lært, að það sem þú segir og gerir vill gleymast, en fólk gleymir ekki hvernig þú lætur því líða.
Sendu þessa orðsendingu til að minnsta kosti fimm frábærra kvenna í dag og eitthvað gott verður á vegi þínum... Þú hefur í það minnsta sagt öðrum konum að þér finnst þær frábærar, og kannski færðu þær til að brosa. En ef þú ekki gerir þetta... þá bilar rennilásinn og sokkabuxurnar rúlla niður á hæla, þangað sem ítölsku skórnir meiða þig...!
Um bloggið
Vangaveltur
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.