25.6.2006 | 19:12
Lítið eitt...
Góðan daginn. Þið verðið að fyrirgefa mér letina við að skrifa á bloggið. Mér finnst bara svo lítið hafa gerst að undanförnu þannig að það er lítið að skrifa um. Það vekur mér fátt ánægju þessa dagana nema þá helst að fara í golf. En þetta er auðvitað bölvað vanþakklæti og ekkert annað. Ég á yndislega, börn, barnabörn og barnabarnabörn og er afskaplega þakklát fyrir það og meina það. Yngsta barnabarnið, strákurinn hans Jóhanns, var nefndur í morgun, Jóhann Nökkvi, en beðið verður með að skíra hann þar til síðsumars eða í haust. Nafnið er afskaplega fallegt og hæfir honum vel.
Það er að verða búið að leggja gervigras á gamla fótboltavöllinn í gilinu. Ég hef verið talsmaður þess um árabil að þessi völlur verði aðalvöllurinn í Neskaupstað og er ánægð að sjá þetta rætast. Höfðingleg gjöf frá Samvinnufélagi útgerðarmanna gerði þetta mögulegt. Ég held að það sé ákveðið að fyrsti leikurinn verði bikarleikur við Val í byrjun júlí, en völlurinn verður vígður um leið og nýja sundlaugarhúsið 15. júlí. Mér finnst það skemmtileg uppákoma að fyrsti leikurinn verði við Val. Við sem vorum forsvarsmenn Þróttar þegar Þróttur lék á sínum tíma við Val á þessum velli, sem þá var malarvöllum, munum þann leik og úrslit hans vel. Þær tölur verða ekki tíundaðar hér enda næsta víst að allt önnur úrslit verða í næsta bikarleik enda um allt annað félag að ræða eða Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar.
Um bloggið
Vangaveltur
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.