Skin og skúrir

Hulda Elma og stelpurnar komu í gær. Það er alltaf jafn yndislegt að vera nálægt þeim. Ef önnur grætur þá grætur hin, og sú eldri er afskaplega hrifin af litlu systur sinni. Amelíu Ýr fannst margt að skoða í gær. Hún var hissa á öllum fiðrildunum og allt í einu spurði hún um bíbí. Hún mundi sem sagt þegar við vorum að gefa snjótittlingunum í vetur. Í nótt var ein af þessum yndislegu nóttum sem ég held að séu hvergi nema hér. Sjórinn svo spegilsléttur að ég ímyndaði mér að jafnvel laufin spegluðust í honum. Roða sló á suðurfjöllin. Dásamleg nótt.

Það fór betur en á horfðist á Eskifirði í gær. Það er aðdáunarvert hvað björgunarstörf gengu vel og sýnir það besta þá samstöðu sem myndast við svona atburði. Margar spurningar sumra fréttamannanna voru þannig að það var eins og þeir vildu að eitthvað hefði farið úrskeiðis. Það var eins og þeir héldu að allir utan höfuðborgarinnar væru molbúar. Einn fréttamaður hváði við mig þegar ég sagði honum að búið væri að fljúga með tvo til Akureyrar: "Til Akureyrar, af hverju ekki til Reykjavíkur?" Ég sagði honum að það væri mun styttra til Akureyrar og þar væri alveg sambærilega þjónustu að fá og í Reykjavík. "Þú meinar það" var svarið sem ég fékk. Ég tel víst að það hafi þarna skipt sköpun að stutt var á heilsugæsluna á Eskifirði og á Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað þar sem einn fremsti lungnasérfræðingur landsins er við störf. Það er ekki allt í Reykjavík, þó sumir haldi það.

Það borða margir rétti sem koma frá 1944. Í dag hef ég fengið 1944 heimsóknir á síðuna mína. Hver verður tvö þúsundasti gesturinn? Lifið heil


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vangaveltur

Höfundur

Hulda Elma Guðmundsdóttir
Hulda Elma Guðmundsdóttir
Róttæk vinstri kona. Er fædd og uppalin í Neskaupstað - ekta Nobbari og haldin átthagafjötrum. Er íþrótta- og félagsmálafrík og elska ferðalög.

Tónlistarspilari

Elvis Presley - Blue Christmas

Nýjustu myndir

  • goðanes
  • img471-copy

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband