29.6.2006 | 23:04
Steingeitin í dag
Steingeitin er full af rausnarskap, hvatvísi og hreinskilni þessa dagana. Afleiðingarnar gætu falist í bræðikasti áður en dagurinn er á enda. Skrifaðu það á reikning skapgerðar listamannsins í þér. Þetta er stjörnuspáin mín í dag, en dagur er að kveldi komin og það má eitthvað svakalegt gerast héðan af svo ég fái bræðikast fyrir miðnætti. Ég verð þó að viðurkenna að ég hef verið svolítið tæp s.l. klukkustund eða svo vegna þess að forritið sem ég er að nota við auglýsingagerðina svarar mér ekki. Kannski er það bara tölvan en ég keypti nýja borðtölvu í dag. Nú verð ég að fara að hreinsa til í þessari og færa það yfir sem ég vil eiga.
Dagurinn er tekinn að styttast. Það eru nokkrir dagar síðan og ég get svarið það að ég sé það gerast. Hafið þið tekið eftir því að ég segi aldrei ske? Hef vandað mig í mörg ár við að segja ekki ske af því að það er ekki íslenska, en það segja það ótrúlega margir. Ég lenti illilega í því í dag. Er búin að bíða eftir því að komast á Reyðarfjörð til að taka myndir í Stríðsárasafninu. Í dag buðust mér svo tvær ferðir. Ég gerði mig út með myndavélina að vopni. Í safninu ætlaði ég aldeilis að taka myndir en vitiði hvað? Það var ekkert kort í henni. OBS. Ég tók það úr í gærkvöldi til að hreinsa af því, setti myndavélina í hleðslu og gleymdi kortinu. Það var mér til happs að nafna mín var með sína vél, svo ég tók allavega myndirnar sem ég ætlaði að taka en gæðin eru lala.
Þið hafið vafalaust heyrt fréttina í RUV um Heilbrigðisstofnun Þingeyinga, ekki satt? En þar eru framkvæmdar margs konar fegrunaraðgerðir sem kosta frá litlum 24 þúsundum upp í 390 þús. Það er ódýrast að láta laga augnpoka, það kostar 94 þús. að laga handleggjapoka, það sem við í daglegu tali köllum hangivöðva, og það kostar 94 þús að laga lærapoka. Það kostar svo 54 þúsund að láta laga skapabarma. Ætli það sé skemmtilegra en pokarnir á fótum og höndum? Gleymdi að segja ykkur frá draumnum s.l. nótt. Geri það seinna.
Um bloggið
Vangaveltur
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.