Þriðjudagur til þrautar

Hlustaði í gærmorgun á konu sem var í viðtali í Ísland í býtið. Hún hafði vægast sagt mjög sérstakar skoðanir á þeim sem blogga. Þeir voru upp til hópa athyglissjúkir eða höfðu átt erfiða æsku. Allavega las ég það út úr því sem hún sagði. Ég blogga af því að mér finnst gaman að skrifa og tjá mig í rituðu máli. Kannski það sé athyglissýki að sjá það sem ég skrifa á skjánum. En ég vil bara deila vangaveltum mínum með öðrum og fá að njóta þess sem aðrir skrifa. Þessi kona er með heimasíðu og ég spyr er það eitthvað annað en blog? Spilaði í Bleika bikarnum á laugardaginn og spilaði illa. Mótið sjálft tókst afskaplega vel og var klúbbnum okkar til sóma. Ekki spilltu vegleg verðlaun sem fyrirtæki í eigu kvenna í Fjarðabyggð gáfu.

Ágúst vinur minn Blöndal er allur. Hann varð bráðkvaddur á sunnudaginn þar sem hann var að slá garðinn sinn. Ég man eftir honum eins lengi og ég man eftir mér. Það var ákveðinn hópur í miðbænum sem alltaf lék sér saman. Hann á símstöðinni, ég í Grænuborg, Dóra, Steina og Unnur í Steininum, sem og Jóhann og Tommi, Róbert og Haraldur í Adamsborg, Elsa í Kastalanum, að ógleymdum strákunum hennar Pálu. Þetta var kjarninn í “Miðbænum” á mínum æskuárum, sem stundum teygði anga sína upp á Miðstræti og út á Nes, en aldrei í innbæinn. Blessuð sé minning hans.

Hulda Elma og stelpurnar eru að fara heim til Akureyrar í dag. Það hefur verið gott að hafa þær og ég á eftir að sakna þeirra. Jóhann Nökkvi Jóhannsson er farinn að brosa, eða eru það kannski grettur vegna vindverkja? Held áfram í dag að sinna skiltagerð. Góðar stundir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vangaveltur

Höfundur

Hulda Elma Guðmundsdóttir
Hulda Elma Guðmundsdóttir
Róttæk vinstri kona. Er fædd og uppalin í Neskaupstað - ekta Nobbari og haldin átthagafjötrum. Er íþrótta- og félagsmálafrík og elska ferðalög.

Tónlistarspilari

Elvis Presley - Blue Christmas

Nýjustu myndir

  • goðanes
  • img471-copy

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband