10.7.2006 | 12:06
Hvað eru tár?
Mér finnst gaman og gott að lesa ljóð. Stundum fæ ég dellu og les ekkert annað en ljóð en annað þess á milli. Einhvers staðar las ég fyrir margt löngu að maður yrði aldrei uppiskroppa með lesefni ef maður ætti ljóðabók. Þess vegna hef ég alltaf með mér ljóðabækur í ferðalög. Sérstaklega þó í langar útilegur. Ég á taksvert af ljóðabókum en hef tapað tveimur á ferðum mínum, báðum til sömu konunnar sem ég ætlaði auðvitað bara að gera vel við. Ég hef svo sem rukkað hana um þær og segir hún, sem ég veit að er satt, að hún ætli að koma í heimsókn og skila þeim. Núna er ég með fyrir fram mig ljóðmæli Hannesar S. Blöndal frá 1913. Á saurblaði stendur að Petra amma hafi eignast þessa bók 20. janúar 1936. Mér er hugleikið eitt ljóðanna sem heitir Tár. Í fyrsta erindinu segir: Hvað eru tár? Innra manns talandi tunga, tæmandi hjartanna þunga, það eru tár. Síðan er fjallað um tár af ýmsum toga. Ég ætla að hafa þessa bók með mér í rúmið í kvöld, ekki vegna þess að ég felli oft tár, bara af forvitni.
Hef átt góða helgi. Fékk gesti á föstudagskvöldið sem fóru fyrir hádegi í dag. Við fórum í golf og í Safnahúsið í gær og vorum svo heppin þar að hitta náin vin Tryggva Ólafssonar sem sagði mér og gestum mínum margt um listamanninn Tryggva. Ég ætla sennilega ekki suður um næstu helgi eins og ég hafði íhugað. Ætla að ljúka við það sem hægt er að ljúka við í skiltagerðinni og sjá svo til.
Skyldi Zidane hafa verið kosinn besti leikmaður Heimsmeistarakeppninnar hefði verið kosið í leikslok?
Um bloggið
Vangaveltur
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.