Góð kvöldstund

Átti frábæra kvöldstund að Gauksmýri 4 í gærkveldi og fékk auðvitað eins og alltaf gómsætan mat, sem heimasætan á bænum sá um að þessu sinni. Þessi kvöldstund gefur tilefni til að minna fólk á að hittast meira og tala saman, já um alla heima og geima. Við rifjuðum upp skemmtisögur af fólki sem við þekkjum og þekktum og það var mikið hlegið. Takk fyrir mig.

Enn ber hæst í fjölmiðlum spurningin um hvað Materazzi sagði við Zidane í úrslitaleiknum. Margir hafa nefnt að Zidane sé hrokafullur og tali niður til fólks og það gerir íþróttafréttamaðurinn Gaupi líka þegar hann segir í Fréttablaðinu í dag að Materazzi stigi ekki í vitið. Hvað veit hann um það? Framkoman sem umræddur Zidane sýndi í þessum leik var ekki til fyrirmyndar.

Það er viðurkennt af lögreglunni í Reykjavík að til eru þeir sem lifa af stuldi. Brotist er inn í hús og flestu verðmætu stolið. Ótrúlegasta fréttin um þetta er þegar hluta af búslóð sem verið var að selflytja úr íbúð og út var stolið. Stólum, bókahillu, sófaborði og tölvu svo eitthvað sé nefnt. En þjófarnir þurfa að koma þessu í verðmæti svo einhversstaðar eru þessir og fleiri hlutir til sölu. Þetta minnir á margt í amerískum glæpamyndum en svona er Reykjavík í dag.

Jónína Bjartmarz vill vera með Jóni Sig. Ekki þessum gamla dauða heldur núverandi iðnaðarráðherra. Hann hefur vilja til að verða formaður framsóknarflokksins og Jónína vill verða varaformaður. Mín skoðun er hinsvegar sú að Guðni Ágústsson hinn frábæri húmoristi verði formaður flokksins. Eins og einn bloggari segir ” Við kjósendur á Íslandi ættum að senda skýr skilaboð til Halldórs Ásgrímssonar og allra annarra stjórnmálamanna, að það verður ekki liðið af kjósendum að peningavaldið tröllríði lýðræðinu lengur.”


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já takk sömuleiðis fyrir frábæra kvöldstund :)

Úrsúla Manda (IP-tala skráð) 12.7.2006 kl. 12:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vangaveltur

Höfundur

Hulda Elma Guðmundsdóttir
Hulda Elma Guðmundsdóttir
Róttæk vinstri kona. Er fædd og uppalin í Neskaupstað - ekta Nobbari og haldin átthagafjötrum. Er íþrótta- og félagsmálafrík og elska ferðalög.

Tónlistarspilari

Elvis Presley - Blue Christmas

Nýjustu myndir

  • goðanes
  • img471-copy

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband