12.7.2006 | 22:58
Eigum við bara að skjóta þá?
Einn viðmælandi minn í dag sagði að það ætti að skjóta alla þá litháa sem kæmu til landsins. Var hann þá að vitna til þeirra sem hafa verið staðnir að innflutningi á fíkniefnum. Það er nú svo að þótt allmikið magn af fíkniefnum séu tekið árlega og aldrei meira en nú, þá er það staðreynd að lögreglan hefur aðeins upp á einum tíunda þess efnis sem smyglað er. Hitt fer í sölu og fíkniefnaneyslan eykst. Það sem mér finnst alvarlegast í þessu máli er að talið er fullvíst að íslendingar standi að þessu smygli með litháunum.
Myndi það ekki koma þessari þjóð, sem við Íslendingar stóðum að því að gera sjálfstæða, illa ef við hættum að ferðast þangað? Nú veit ég að það er aðeins lítill hluti hennar sem er viðriðin glæpi sem eiturlyfjasmygl. En myndu ráðamenn ekki hugsa sig betur um og reyna að uppræta þennan fjanda þegar þeir sjá alvöruna. Mér finnst líka að Íslendingar eigi að hætta að ferðast til Ísrael. Sýna þeim líka í verki að við getum ekki samþykkt eilífar hryðjuverkaárásir þeirra á saklausa borgara.
Ég hef svolítið verið að skoða ferðir til útlanda, stuttar haustferðir eins og þær heita víst. Meðal annars býður Ferðaskrifstofa Austurlands upp á ferð til Vilnius, fjögurra nátta ferð fyrir 72.300, Trans Atlantic býður ferð til Tallinn frá 58 62.000, allt sambærilegt er innifalið en svo er hægt að fá samskonar ferðir hjá Terra Nova fyrir frá 34.790.- kr. Ferðaskrifstofurnar á landsbyggðinni geta vissulega ekki keppt við þær stóru en þetta er alltof mikill munur, jafnvel þó maður þurfi að fara til Rvk. Hugsið ykkar gang ferðaskrifstofueigendur.
Um bloggið
Vangaveltur
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.