14.7.2006 | 12:48
Hundadagar
Samkvæmt íslenska almanakinu kallast tímabilið frá 13. júlí til 23. ágúst hundadagar. Egyptar og Grikkir í fornöld trúðu því m.a. að hundar yrðu galnir um þetta leyti og jafnvel mannfólkið líka. Nafnið hundadagar tengist stjörnunni Síríus sem þá fer að sjást á morgnana. Hjá Íslendingum er hundadaganafnið reyndar tengt Jörundi hundadagakonungi sem tók sér völd á Íslandi 25. júní 1809, en var hrakinn frá völdum 22. ágúst sama ár. Því verður hér eystra bongóblíða næstu 40 daga. Velkomin á Austurlandið.
Mér rataðist satt á munn þegar ég talaði um að fólk ætti ekki að fara til Israels. Nú eru gefnar út strangar viðvaranir um að fara þangað sem og Líbanon þar sem ísraelar salla nú niður saklaust fólk og þá einnig á heimasvæði Palestínumanna. Enn og aftur sýndu Bandaríkjamenn sitt rétta andlit þegar þeir í allsherjarráði Sameinuðu þjóðanna í gær neituðu að víta Israelsmenn. Þeir sem fara til Israel þykjast oft á tíðum að vera frelsaðir og eru að fara í pílagrímsferð. Þvílík hræsni.
Um 5% vinnufærra manna höfðu um tvær miljónir í laun á síðasta ári, en þorri vinnufærra manna höfðu 3.5 miljónir. Af hverju birta þeir ekki hvað þorri elli- og örorkulífeyrishafa höfðu í laun? Kjör þeirra sem minna mega sín er smánarblettur á þjóðinni, sem því miður enginn tekur á því, sama í hvaða flokki er.
Mikið rosalega er bærinn minn orðinn fallegur. Aldrei hafa blómaskrúðin verið sem nú og fjölmörg ljót svæði hafa verið tyrft eða í þau sáð. Gott hjá þér Árni Steinar.
Um bloggið
Vangaveltur
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.