Komin aftur

Fyrirgefið, ég fæ sektarkennd yfir því hvað ég hef verið léleg við bloggið að undanförnu. Skrítið því ég er ekki skuldbundin neinum nema sjálfri mér. Svona tilfinningarnar skjóta upp kollinum við ólíklegustu aðstæður og líka þó ég sé í góðu jafnvægi og vellíðan. Petra kom á mánudagskvöldið og höfum við átt yndislegar stundir og meðal annars farið í golf. Það gerum við hins vegar ekki í dag því það rignir. Súldin sem spáð var við ströndina er sem sagt rigning. En þá gerum við bara eitthvað annað. Skreppum í Héraðið og á Seyðisfjörð, sennilega er bjartara í efra en neðra þó mér sé óljúft að viðurkenna að eitthvað sé betra í efra!

Ætla með Petru suður á föstudagsmorguninn. Fer svo í enn eina jarðarförina á laugardaginn en það á að jarðsetja Guðríði frænku mína frá Seldag í Kálfatjarnarkirkju á laugardaginn. Hún varð ekki gömul fædd 1940. Það verður þá fjórða jarðarförin á 4 vikum og óneitanlega leiðir það hugann að dauðanum. En það er jafnvíst að hann bíður okkar allra. En tekur eitthvað við? Ég hef ekki svar við þeirri spurningu en veit fyrir víst að mamma hefði sagt já.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vangaveltur

Höfundur

Hulda Elma Guðmundsdóttir
Hulda Elma Guðmundsdóttir
Róttæk vinstri kona. Er fædd og uppalin í Neskaupstað - ekta Nobbari og haldin átthagafjötrum. Er íþrótta- og félagsmálafrík og elska ferðalög.

Tónlistarspilari

Elvis Presley - Blue Christmas

Nýjustu myndir

  • goðanes
  • img471-copy

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband