25.7.2006 | 21:19
Ég er komin heim!
Jæja er ekki kominn tími til að tengja. Var í Borg óttans frá því á föstudag til dagsins í dag og átti bara góðar stundir. Fór meira að segja á Þingvöll en skömm er frá því að segja að þangað hef ég ekki komið síðan ég var barn og svo lék ég golf í Hveragerði. Nú Siggi Nobb, sem sigldi um öll heimsins höf og var bitinn af leðurblökum í svörtustu Afiríku, var við hvalveiðar við Suðurskautslandið, hann kom aldrei á Þingvöll!
Gat ekki stillt mig um að leiðrétta skrif Hallgríms Helgasonar í Fréttablaðinu, en þar skrifaði hann á Neskaupstað og í Norðfirði og Neskaupstað með tveimum essum. Hann viðurkenndi að essin tvö væru sín en hvað í og á varðar þá hringdi hann í lögregluna í Neskaupstað til að fá upplýsingar um hvernig þetta væri skrifað og svarið var; við segjum á Neskaupstað og í Norðfirði. Hvaða lögga svaraði Hallgrími Helgasyni?
Enn er barist í Mið-Austurlöndum og harna átökin frekar en hitt. Kameini erkiklerkur í Íran segir að Ísrael sé djöfullegt krabbamein. Og það er líklega satt. Illugi Jökulsson segir að ekki megi rugla saman Gyðingum og Gyðingatrú, en hvernig er annað hægt? Það er deginum ljósara að stuðningur Bandaríkjanna við Ísrael er tilkominn vegna þess að í Bandaríkjunum ráða Gyðingar öllu. Þeir eru í velflestum æðstu stöðum samfélagsins og ráða ferðinni í peningamálum. Sagt er að í Pétursborg á dögunum hafi Bush og Blair komið sér saman um að besta væri að kenna Hamas og Hezbola um ástandið í Mið-Austurlöndum. Þannig kemst Ísrael upp með allt. Það er gott að búa í Fjarðabyggð.
Um bloggið
Vangaveltur
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.