26.7.2006 | 11:29
Ekki jarðgöng - stærri flugstöð
Eins og þeir muna sem hafa fylgst með umræðum hér eystra um jarðgangagerð, stóð Sjálfstæðisflokkurinn í Fjarðabyggð fyrir opnum fundi með samgönguráðherra um ný jarðgöng milli Eskifjarðar og Norðfjarðar. Út úr þeim fundi kom ekkert, sagt og skrifað með stórum stöfum EKKERT. Mér dettur þetta í hug þegar ríkisstjórnin beinir þeim tilmælum til sveitarfélaga og annarra að draga úr framkvæmdum, þá stendur til að stækka flugstöðina í Keflavík og hljóðar kostnaðurinn upp á litla sjö miljarða króna. Og verkið á að taka eitt ár. Áætlað er að flugstöðin verði með þessu boðleg gestum og gangandi næstu 10 árin. Ég segi og skrifa næstu 10 árin. Og meira, þar er gert ráð fyrir aðstöðu fyrir innanlandsflug.
Jarðgöng milli Eskifjarðar og Norðfjarðar er eitt brýnasta hagsmunamál Fjarðabyggðar og reyndar allra sem fara hér um. Í jarðgangagerð sem lögð var fram árið 2000 var gert ráð fyrir að göng milli þessara staða kostuðu um 2 miljarða króna, en þá var talað um styttri göng en nú er talað um. En hvað um það. Fyrir sex árum var talið að hver km. í jarðgöngum kostaði allt að 500 miljörðum króna, þessar tölur eru allt að helmingi lægri í dag. Þannig að það mætti gera umrædd göng fyrir það sem kostar að stækka flugstöðina og vel það.
Það eru Alþingiskosningar í vor. Ný vegaáætlun verður lögð fram í haust. Ég skora á íbúa Fjarðabyggðar og raunar alls Austurlands að fylgjast vel með hvernig þessi mál verða afgreitt á hinu háa Alþingi. Látum reyna á þingmenn kjördæmisins jafnt í stjórn sem stjórnarandstöðu að þeir standi sig í þessum málum. Láti hagsmuni kjördæmisins ganga fyrir flokkslínunum. Við viljum göng og það strax, allavega dagsetningu á framkvæmdina.
Um bloggið
Vangaveltur
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.