28.7.2006 | 09:53
Ekki góð kynning
Maður á ekki að vera svona krítiskur. Var að fá til mín póstkortin sem gefin eru út til kynningar á Fjarðabyggð. Markmiðið er gott og hugmyndaríkt, en myndirnar á póstkortunum eru ekki til að hrópa húrra yfir. Það er ákkúrat ekkert á þeim sem laðar fólk að eins og tilgangurinn með kortunum er. Ég hefði viljað sjá annað en börn og gamalmenni á myndunum, með einni eða tveimur undantekningum þó. Þessi kort segja ákkúrat ekki neitt. Þá vil ég benda enn einu sinni á; verslum í heimabyggð. Þó svo að auglýsingastofa sé fengin til að gera kortin er alveg hægt að prent þau hérna heima, að minnst kosti á Austurlandi. Ég hef margsinnis bent á þetta sama, verslum í heimabyggð. Gildir þá engu um hvað er að ræða. Ef við notum ekki þjónustuna í heimabyggð, leggst hún af. Ég held að ég sendi þessi kort ekki!
Gerði það í gær sem ég hef aldrei gert fyrr, fór í heimsókn rétt fyrir hádegi og var auðvitað boðið í mat! Skemmtilegur og góður hádegisverður, kannski ég geri þetta næst á kaffi- eða kvöldmatartíma!
Um bloggið
Vangaveltur
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Flottar myndir frá Eski- og Reyðarfirði.
Björgvin Valur (IP-tala skráð) 28.7.2006 kl. 13:02
Sammála, það er tvær góðar myndir. Eg.
Elma (IP-tala skráð) 28.7.2006 kl. 16:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.