Hvað leynist á loftinu?

Þá styttist í að ég fái Jóhann Frey, Camillu, Maríu Mist og Jóhann Nökkva í heimsókn. Þau lögðu af stað í morgun áleiðis til Akureyrar og ætla að vera þar einhverja daga. Þá koma Hulda Elma og Siggi með stelpurnar sínar, þannig að það verður margt um manninn. Ekki bara yfir Neistaflug, nei Jóhann Freyr og fjölskylda ætla að stoppa fram eftir mánuðinum.

Ég hef verið að velta fyrir mér hvernig ég get nýtt mér þennan gestagang og komist að þeirri niðurstöðu að best sé að tæma loftið. Þar kennir ýmissa grasa, flest hefur legið þar óhreyft frá því að því var “skutlað upp á loftið” sumt fyrir 30 árum, barnaföt og leikföng, gamlar vinyl plötur sem ég vona að einhver vilji eiga, íþróttafatnaður og margt margt fleira. Jú eitthvað er sem fylgdi með þegar við fluttum inn fyrir rúmlega 31 ári. Svo kemur eflaust eitthvað í ljós sem ég verð hugfangin af og tími ekki að henda, er að vona að gömlu síðkjólarnir mínir séu á sínum stað, hárkollan með tjásunum sem kom frá Skagen eða Hirtshals, já og...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vangaveltur

Höfundur

Hulda Elma Guðmundsdóttir
Hulda Elma Guðmundsdóttir
Róttæk vinstri kona. Er fædd og uppalin í Neskaupstað - ekta Nobbari og haldin átthagafjötrum. Er íþrótta- og félagsmálafrík og elska ferðalög.

Tónlistarspilari

Elvis Presley - Blue Christmas

Nýjustu myndir

  • goðanes
  • img471-copy

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband