3.8.2006 | 09:44
Hamingjusama þjóðin og sjálfsvígin
Þá er það staðfest að Íslendingar eru fjórða hamingjusamasta þjóð í heimi. Hverjir skyldu hafa verið spurðir? Bankastjóranir með miljónatugina á mánuði eða ellilífeyrisþeginn með hundrað þúsundin? Annars er ég viss um að það eitt skipti ekki máli því margur verður af aurum api og það hefur marg sannast. Danir eru hamingjusamastir allra en þó eru fleiri sjálfsvíg þar en annars staðar í Evrópu. Þeir sem fyrirfóru sér hafa náttúrulega ekki verið spurðir!!!
Það er skrítið þetta veður. í gær var hér þoka og það súldaði með kvöldinu, en bjart sunnan skarðs. Það er líklega eins þegar þetta er skrifað að morgni fimmtudagsins 3. ágúst. En það rífur af sér þegar líður á daginn. Hef haft í nógu að snúast m.a. við undirbúning Neistaflugsmótsins. Það verður án efa vel sótt eins og vanalega en í fyrra mættu 112 kylfingar til leiks. Svo verður afmælismót Stefáns Þorleifssonar 19. ágúst. Það er haldið í tilefni 90 ára afmælis höfðingjans og verður mótsgjaldið það sama og fyrir aldarfjórðungi eða svo, þúsund kall!
Það er líflegt í húsinu og gott að svo sé.
Um bloggið
Vangaveltur
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.