4.8.2006 | 13:12
Enn ein jarðarförin
Það vekur alltaf blendnar tilfinningar að fara í kirkju þó bara sé um jarðarför að ræða. Efirsjá að hafa ekki sótt kirkju betur, eftirsjá af þeim sem verið er að kveðja. Ég var í fimmtu jarðarförinni í dag á innan við tveimur mánuðum. Skyldi ég vera komin á þann aldur að fylgja fólki til grafar eða er þetta tilviljun. En sumir segja að tilviljanir séu ekki til. Hvað um það ég var að fylgja Sísí í Grænanesi en við vorum systkinabörn. Mikið erum við heppin hér í bæ að eiga þennan góða kirkjukór og frábæran organista. Hafið þið velt því fyrir ykkur? Og meira um jarðarfarir. Lilla vinkona mín var að fylgja öðrum eiginmanni sínum til grafar í dag. Hún er 62 ára og ekkja tvisvar sinnum, já það er misjafnt sem á okkur er lagt.
Það er ekki sem best Neistaflugsveðrið. Súld og þokuloft. Það er engu að trúa sem veðurfræðingarnir segja enda er uppáhaldslag landsmanna núna Veðurfræðingar ljúga sjálf hef ég ekki heyrt það. Læt þetta duga í bili
Um bloggið
Vangaveltur
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.