Að loknu Neistaflugi

Neistafluginu lauk með mikilli flugeldasýningu í gærkveldi. Ekki var skotið upp á sama stað og áður, þ.e. á höfninni, þannig að allir skrautflugeldarnir sprungu við eða yfir sjúkrahúsinu. Það hefur ekki verið gott að vera sjúklingur þar á þeim tíma! Annars fór þetta allt vel fram. Af þeim tveimur fíkniefnamálum sem upp komu var annar aðilinn þekktur hér áður fyrr sem “díler” og neytandi. Á Akureyri urðu fíkniefnamálin á sjöunda tuginn, enda “Ein með öllu”.

Við hér á Mýrargötunni höfum haft það gott. Jóhann Nökkvi og María Mist hafa verið ósköp góð, að undanskildu því að MM fékk smá leiðindakast í gærkveldi, en það hvarf með svefninum. "Litla fjölskyldan" sem stækkar reglulega kom í gær og var ánægð að sjá tertuna í ísskápnum, var henni gerð góð skil og kláraðist í gærkveldi! Lofaði MM að baka með henni í dag og stend við það, auðvitað.

Ekki get ég frekar en fyrri daginn hrósað spilamennsku minni í Neistaflugsgolfinu. Seinni hringurinn var í lagi en sá fyrri ömurlegur. Það er verst að ég veit hvað er að en ég hef ekki til þessa getað breytt því. Það kemur. Framundan eru Hefðameyjamótið og Stefánsmótið, til heiðurs Stebba Þorleifs níræðum. Lifið heil.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vangaveltur

Höfundur

Hulda Elma Guðmundsdóttir
Hulda Elma Guðmundsdóttir
Róttæk vinstri kona. Er fædd og uppalin í Neskaupstað - ekta Nobbari og haldin átthagafjötrum. Er íþrótta- og félagsmálafrík og elska ferðalög.

Tónlistarspilari

Elvis Presley - Blue Christmas

Nýjustu myndir

  • goðanes
  • img471-copy

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 160787

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband