Marilyn endurfædd - ekki Laddi

Þá er það staðfest að við endurholgumst! Hvað segir ekki við útförina “af moldu ertu komin…” Nú hefur verið staðfest að Marilyn Monroe öðru nafni Norma Baker er endurfædd. Skoskættuð kanadísk söngkona heldur því fram, að hún sé kvikmyndastjarnan Marilyn Monroe endurfædd. Bandarískur sálfræðingur, sem stundað hefur söngkonuna, er þessu sammála og hefur nú skrifað heila bók um málið þar sem hann rekur ýmsar sannanir fyrir fullyrðingunum. Allt fyrir peningana. Söngkonan bendir á hún hafi fæðst 9 mánuðum eftir að Monroe lést, að því er talið er vegna ofneyslu svefnlyfja. Sálfræðingurinn sem stundað hefur söngkonuna undanfarin sjö ár og dáleitt hana ítrekað er sannfærður um að saga hennar sé sönn. Og það er ekki nóg með að Marilyn sé endurfædd heldur er móðir hennar það líka í líkama dóttur söngkonunnar! Það gerist margt í heimi hér.

Hvað gekk stjórnendum Neistaflugs til að fá Ladda til að skemmta? Útbrunninn að öllu leyti, getur víst ekki einu sinni leikið golf án þess að svindla (segir sagan). Hann kunni ekki einu sinni textana sem hann ætlaði að syngja og var með sömu gömlu lummurnar. Ég var á Akureyri þegar hann var þar á 17. júní og það var úað á hann. Sleppið Ladda, Valgeiri, Erni og hvað þeir allir heita þessir tekjulausu skemmtikraftar. Ég hef það fínt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vangaveltur

Höfundur

Hulda Elma Guðmundsdóttir
Hulda Elma Guðmundsdóttir
Róttæk vinstri kona. Er fædd og uppalin í Neskaupstað - ekta Nobbari og haldin átthagafjötrum. Er íþrótta- og félagsmálafrík og elska ferðalög.

Tónlistarspilari

Elvis Presley - Blue Christmas

Nýjustu myndir

  • goðanes
  • img471-copy

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband