25.8.2007 | 20:14
Ég er LATTE!
Ég held að ég hafi bloggað yfir mig í Færeyjum nema þörfin fyrir að tjá mig hafi verið svona rík. Allavega er ég löt við það þessar stundirnar. Var í golfmóti í dag og spilaði bara vel, ætti sennilega að æfa sem minnst því þá er ég best. Eins og á vorin þá spila ég eins og engill en þegar líður á sumarið þá fer allt spiliríið til and... Spilaði með Nönnu, Kötu og Pim og vorum við góður kvartett. Það var kaffihlaðborð í skálanum og þvílíkar kræsingar, það verður ekki á þær logið eldhúsmellurnar okkar.Las bloggið hennar Jónu Hörpu í dag og sá þá að hún hafði tekið þátt í einhverri könnun sem nefnist kaffiprófið. Það sem hún fékk út úr því var að hún er TE. Ég mátti auðvitað til með að prófa þetta og þetta var útkoman:
Samkvæmt kaffiprófinu er ég
Latte!
og samanstend af tvöföldum espresso og flóaðri mjólk
Um bloggið
Vangaveltur
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Og hvar er þetta próf að finna?
Edda Agnarsdóttir, 26.8.2007 kl. 12:10
Ó.nei ég hafði ekki hugsað út í að einhver vildi nota þetta gefðu mér smá stund og ég gef þér svarið.
Eg. (IP-tala skráð) 26.8.2007 kl. 22:30
http://www.froskur.net/annad/kaffi/te/ hvernig kaffi ert þú??
Eg. (IP-tala skráð) 26.8.2007 kl. 22:36
Heil og sæl Elma mín.. ég fann þig hjá henni Lindu Ósk
. Langt síðan við höfum hist. Nú eru flestir hættir í Efstaleitinu og farnir á önnur mið. Við Linda byrjuðum saman fyrir 9 árum og hættum líka saman um daginn.
ÉG var expressó í þessu prófi
og held að það sé vel við hæfi,,,en drekk samt yfirleitt Latte....
Herdís Sigurjónsdóttir, 7.9.2007 kl. 16:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.