2.4.2008 | 09:42
Vinarbréf
Vinarbréf
Þetta er saga af litlum dreng sem var afar geðvondur. Faðir hans gaf honumnaglapakka og sagði honum að í hvert sinn sem hann missti stjórn á skapi sínu skyldi
hann negla einn nagla í bakhlið grindverksins.
Fyrsta daginn negldi drengurinn 37 nagla í grindverkið. Næstu vikurnar lærði hannað hafa stjórn á reiði sinni og fjöldi negldra nagla minnkaði dag frá degi. Hann
uppgötvaði að það var auðveldara að hafa stjórn á skapi sínu en að negla alla þessa
nagla í girðinguna.
Loksins rann upp sá dagur að enginn nagli var negldur og drengurinn hafði lært að
hafa stjórn á sér. Hann sagði föður sínum þetta og faðirinn lagði til að nú drægi
drengurinn ú t einn nagla fyrir hvern þann dag sem hann hefði stjórn á skapi sínu.
Dagarnir liðu og loks gat drengurinn sagt föður sínum að allir naglarnir væru horfnir.
Faðirinn tók soninn við hönd sér og leiddi hann að grindverkinu.Þú hefur staðið þig með prýði, en sjáðu öll götin á grindverkinu. Það verður aldrei
aftur eins og það var áður. Þegar þú segir eitthvað í reiði, skilur það eftir sig ör alveg
eins og naglarnir.
Þú getur stungið mann með hnífi og dregið hnífinn aftur úr sárinu, en það er alveg
sama hve oft þú biðst fyrirgefningar, örin eru þarna samt áfram. Ör sem orð skilja eftir
sig geta verið jafnslæm og líkamleg ör.
Vinir eru sjaldgæfir eins og demantar. Þeir hlusta á þig, skiptast á skoðunum við þigog opna hjarta sitt fyrir þér. Nú er alþjóðleg vinavika. Sýndu vinum þínum hve mikils
þú metur þá og sendu þeim þetta bréf. Það getur vel verið að þú fáir bréfið til baka og þá finnur þú að þeir meta vináttu þína. Þú hefur þú safnað um þig vinahring.
Þú ert vinur minn og það er mér mikill heiður. Sendu nú bréfið til vina eða fjölskyldu.Og fyrirgefðu mér ef ég hef skilið eftir göt í grindverkinu þínu.
Um bloggið
Vangaveltur
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.9.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.