9.7.2008 | 19:09
Ég á von á...
Þetta er rosalega fátæklegur orðaforði sem þeir búa yfir og þeir klifa endalaust á þessum frasa. Af hverju ekki að segja; búast má við, eða reikna má með, sennilega verður... og svo framvegis. Þessar setningar sem byrja; ég á von á.,.. kemur mér til að finnast að þeir sem eru að segja veðurfréttirnar séu að setja sig í einhverja Guða tölu, eins og ég ætla að hafa... Ófrískar konur eiga von á sér en andsk... ekki Siggi stormur!
Á vissan hátt má segja þetta sama um íþróttafréttaritara. Þeir hamast alltaf á sömu frösunum s.s. þrumaði boltanum í netið. Þeir virðast hafa Margréti Láru á heilanum. Þessi frábæra knattspyrnukona á allt gott skilið, en það eru fleiri í liðinu sem hún er í og það er annað lið með jafnmörgum leikmönnum á móti.
Um bloggið
Vangaveltur
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Einmitt! Það eina sem ég veit er að ég á von á mér á morgun... svo er bara spurning hvað verður
Alveg sammála þér með Margréti Láru, það er eins og hún sé sú eina í liðinu.
Úrsúla Manda , 9.7.2008 kl. 21:05
Það verður barn það er engin spurning!
Hulda Elma Guðmundsdóttir, 9.7.2008 kl. 21:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.