6.11.2008 | 17:33
Karlinn sem hirti bankann minn
Ég finn það gegnum svefninn
að einhver læðist inn
og tekur bankann minn
og veit að það er Dabbi
sem gleðja mun nú Finn
sem útrás í nú fer
með veðsett allt hjá mér
læðist út úr pólitík
og lokar á eftir sér
*
Ég veit að þeim er borgið
og finnst það sökka feitt
að þjóðin fær ei neitt
einkaþotur, snekkjurnar
sem FL hafði greitt.
Langþreytt er nú þjóð
hún er að verða óð
og heimtar núna blóð
á meðan skrökvar Geir að mér
af pólitískum móð
*
Ég von'að þessi klíka
sé vinafá og snauð
og detti niður dauð
skilji eftir erfðaskrá
og skili okkar auð.
Þau eru ansi fá
sem um allt kenna má
og gera lögtak hjá
hirða aftur peninga
sem þjóðin okkar á.
*
Höf. ókunnur
Lag: Konan sem kyndir ofninn minnUm bloggið
Vangaveltur
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Meðan ég var að undirbúa jólabókasölu 2008 frá Bókaútgáfunni Hólum til bókasafna landsins að þá var mér að leik að "Google" örlítið að kanna bækurnar sem ég var með í boði í ár og þá birtist þessi bloggsíða og það vegna Önnu á Hesteyri og hennar bók en Bókaútgáfan Hólar gefur bókina út.Til mikillar ánægju bíða nú margir spenntir eftir ævisögu hennar sem mun bera heitið. "Ég hef nú sjaldan verið algild"
Ævisaga Önnu á Hesteyri
Rannveig Þórhallsdóttir skráir bókina.Anna á Hesteyri er alveg einstaklega skemmtilegur og hrífandi persónuleiki.
Brosandi, tannlaus fegurðardís í sóleyjarskrúða? Ruslasafnari á hjara veraldar? Hetja? Verndari utangarðs- og glæpamanna?
Til hvaða ráða grípur Anna á Hesteyri þegar til hennar kemur óboðinn gestur um nótt?
Hvað fékk hún Landhelgisgæsluna til að gera?
Hvernig lék hún á dýralækninn?
Og hverju lofaði hún þegar í óefni stefndi í bílprófinu?
Bráðskemmtileg saga og spennandi - sögð með orðum einbúans á Hesteyri og þeirra sem til hennar þekkja. Reyndar ætla ég að bjóða þeim sem standa að þessari síðu og þeim sem hana heimsækja upp á að eignast þessa bók hér og nú með 25% austfirðinga afslætti.
(Ég og útgefandinn sem er bróðir minn erum ættuð frá Norðfirði en fædd og uppalin á Eskifirði)Leiðbeinandi verð er: 4.980 kr. Tilboðsverð hér: 3.700 kr.Áhugasamir panti með tölvupósti á netfangið annaeiriks@simnet.is og eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja þar með.NAFN KAUPANDA - HEIMILISFANG OG PÓSTNR - KENNITALA - HEITI BÓKAR OG TILBOÐSVERÐ - ANNAÐ.Best er að nýta sér greiðslukortaþjónustu okkar enda er það lang einfaldast fyrir báða aðila og þá má tvískipta greiðslu án aukakostnaðar ef áhugi er á.
Kortanúmer alls 16 tölustafir og gildistími korts þurfa þá að fylgja pöntun.
Póstkrafa er annað greiðsluform og þá er greitt fyrir bókina á pósthúsi athugið að engin kostnaður er á sendingunni og því ofangreint tilboðsverð 3.780 kr endandlegt.Nauðsynlegt er að gefa upp nafn bókarinnar við pöntun og tilboðsverðið sem ég býð ykkur hana á hér á þessari slóð.MEÐ VON UM AÐ ÞESSI KYNNING HAFI VAKIÐ ÁHUGA Á AÐ PANTA BÓKINA MEÐ ÞESSUM AFSLÆTTI.Pantanir berist sem fyrst á netfang mitt annaeiriks@simnet.is með ofangreindum atriðum.
Með vinsemd og virðingu.
Kveðja f.h. Hóla bókaútgáfu
Anna Eiríksdóttir
annaeiriks@simnet.is
S: 695-4983 eftir kl 18.00
Anna (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 18:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.