Færsluflokkur: Bloggar

Ekki komið austur fyrir Elliðaá

það er ekki í lagi með þessa ríkisstjórn. Það er hægt að halda að þingmenn hennar hafi aldrei komið austur fyrir Elliðaá. Það er einblínt á Stór-Reykjavíkursvæðið og landsbyggðin skiptir engu máli. Ætli stjórnarherrarnir hafi veitt athygli hvaðan útflutningstekjurnar koma? Mér væri nokk sama þó til stjórnarslita kæmi og kosið yrði enn einu sinni. Ég veit fyrir víst hvert atkvæðið mitt myndi ekki lenda!


mbl.is Sjálfstæðismenn í Eyjum taka undir með VG á Norðurlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins, loksins

Það er vissulega mál til komið að forsætisráðherra tali til Breta sjýrt og skorinort. Það hefði hún átt að gera fyrir löngu síðan.

 


mbl.is Jóhanna gagnrýnir Brown
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stríðsyfirlýsing Árna Páls

Þær tillögur sem félagsmálaráðherra kynnti í síðustu viku um aðgerðir til leiðréttingar greiðslubyrði og aðlögun skulda eru stríðsyfirlýsing en ekki sáttargerð, að mati Hagsmunasamtaka heimilanna.
Samtökin telja að með tillögunum hafi Árni Páll staðfest að í landinu gildi tvenn lög. Lög fjármagnseigenda og fjármálafyrirtækja og lög skuldara.
„Samtökin sjá ekki að tillögur ráðherra uppfylli á nokkurn hátt, þau markmið sem sett eru fram í kynningarefni ráðherrans, svo sem að leiðrétta misgengi lána, launa, verðlags og gengis krónunnar, að eyða óvissu, að gæta jafnræðis, hófsemi og sanngirni og að stuðla að sátt í samfélaginu. Tillögurnar eru stríðsyfirlýsing, ekki sáttargerð."

Sagði ekki einhver að hann ætti helst heima í bæklingi frá Hagkaupum?

Úr landi með þá strax

Enn og aftur eru það glæpamenn af erlendum uppruna sem lögreglan handtekur. Ekki í fyrsta, annað eða þriðja sinn. Á meðan þessir glæpamenn sjá sér hag í því að vera í íslensku fangelsi, í fríu fæði og húsnæði og með dagpeninga að auki, linnir ekki þessum afbrotum. Og svo ganga þeir lausir þangað til vistunarpláss finnst og halda áfram iðju sinni. Ég vil að það verði tekið harðar á þessum glæpamönnum, þeim vísað tafarlaust úr landi og mega ekki koma aftur. Fyrir utan allt það tjón sem þessir menn valda kosta þeir íslenska skattborgara tugi ef ekki hundruð milljóna á ári hverju. Það má kalla mis rasista það er í góðu lagi, en ég þoli ekki þessa linkind og undirlægjuhátt gagnvart útlendingum.
mbl.is Fjórir handteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það verður aldrei...

Það verður aldrei annar Elvis Preslay, ekki heldur þó hann sé barnabarn hans. Það kemst einfaldlega enginn með tærnar þar sem Elvis hafði hælana.
mbl.is Nýr Presley á tónlistarsviðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að kjötkötlunum...

Þingkosningar eru í Grikklandi í dag, en kosningabaráttan hefur verið stutt. Flest þykir benda til þess að íhaldsmenn missi valdatökin og sósíalistar komist að kjötkötlunum. Sérkennilega að orði komist, hafa menn kannski gleymt því að íhaldið og framsókn sat að kjötkötlunum í 18 ár? Þar fitnuðu þeir eins og púkinn á fjósabitanum.


mbl.is Stjórnarskipti líkleg í Grikklandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt á sokkaleistunum...

Mér finnst að lífverðirnir sem standa vörð um stjórnendur AGS ættu að tékka á skótaui fólks sem kemst í námunda við það. Allavega að krefjast þess að skórnir séu vel reimaðir. Fær sendinefndin virkilega 250 þúsund á dag sem dagpeninga?
mbl.is Steingrímur til Tyrklands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yndislegir endurfundir

Í gær hitti ég ungan mann sem flutti með fjölskyldu sinni til Ástralíu fyrir 40 árum. Það voru skemmtilegir endurfundir og hreint út sagt yndislegt að sjá hann, hlusta á hann tala og hann hafði góða nærveru. Þessi ungi maður er Gunnar Víkingur, Dadi, eins og hann var kallaður. Hann talar lýtalausa íslensku og sagði að þau systkinin töluðu alltaf íslensku sín á milli. Dadi á þrjú börn og tala stelpurnar sem eru yngri eitthvað í íslensku en sonurinn sem er nú staddur í Singapúr ekki. Það voru skemmtilegar stundir í stofunni hjá Benna og Olgu í gær. Já vel á minnst ég rakst þar inn af því að Olga átti afmæli.

Dadi rifjaði upp skemmtileg atvik og minnisstæða menn frá árunum sínum hér, en hann var 15 ára þegar þau, þessi stóra fjölskylda tók sig upp og flutti yfir hálfan hnöttinn. Um það var fjallað í blöðum landsmanna. Tryggð Víkinganna við heimahagana er að mér finnst einstök. Dadi rifjaði upp þegar hann var í sveit á Berufjarðarströndinni. Þangað fór hann fyrst á síldarbáti til Djúpavog og var sóttur þangað yfir fjörðinn/voginná trillu. Hann minntist þess að þegar hann svo fór þangað í fyrsta skipti í bíl var hann 5 tíma á leiðinni.

Hann mundi hvar Lúðvík Jósepsson geymdi bílinn sinn, en hann var nágranni Víkinganna í Miðstrætinu, ferð með Dóra sjó til Mjóafjarðar, þar sem hann var þess heiðurs aðnjótandi að vera í lúkarnum með Dóra og hlusta á frásagnir hans.

Ég gæti haldið lengi áfram að rifja upp eitt og annað í frásögn Dada en læt hér staðar numið. Það er rétt að geta þess að þegar Víkingarnir hafa heimsótt sínar æskustöðvar hafa þeir allir gist á Mýrargötunni hjá Ernu og Manna Jóns. Takk fyrir góðar stundir í gær.


Ekki í æfingu

Það er greinilegt að Tyrkneskir kastarar eru ekki í góðri æfingu. Þeir eru ekki framarlega í röð spjót-, kringlu-, eða kúlukastara ef skoðuð eru afrek á lista Alþjóða Olympíunefndarinnar eða heimslista Alþjóða frjálsíþróttasambandsins. Mér finnst að íslenskir kastarar, sem við eigum nóg af, ættu að setja sig í stellingar og vera viðbúnir innrás AGS.
mbl.is Kastaði skó í forstjóra AGS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flýtur á meðan ekki sekkur

Vonandi tekst þessum ofurhuga ætlunarverk sitt. Hann gæti jafnvel gerst ráðgjafi ríkisstjórnarinnar, sem sekkur dýpra og dýpra með svikin loforð á bakinu.
mbl.is Ætlar yfir 200 metra vatn á jeppanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Vangaveltur

Höfundur

Hulda Elma Guðmundsdóttir
Hulda Elma Guðmundsdóttir
Róttæk vinstri kona. Er fædd og uppalin í Neskaupstað - ekta Nobbari og haldin átthagafjötrum. Er íþrótta- og félagsmálafrík og elska ferðalög.

Tónlistarspilari

Elvis Presley - Blue Christmas

Nýjustu myndir

  • goðanes
  • img471-copy

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband