Færsluflokkur: Bloggar
13.12.2008 | 11:41
Ekki tilbúin að lækka launin sín
Framsóknarmaðurinn Þorbergur Hauksson lagði þá fram eftirfarandi tillögu: Undirritaður leggur til að tillögu bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks verði vísað til fjárhagsáætlunargerðar
Tillaga Þorbergs var samþykkt með 6 atkvæðum meirihlutans gegn 3 atkvæðum minnihlutans.
Það er merkilegt með tilliti til þess að meirihlutinn kennir sig við jafnrétti og bræðralag skuli ekki samþykkja tillögu Sjálfstæðismanna sem þýðir einfaldlega að meirihlutinn er ekki tilbúinn að lækka launin sín. En vonandi sér hann að sér og gerir það við gerð fjárhagsáætlunarinnar.
Einn nefndarmaður í Fjarðabyggð, Bjarney Hallgrímsdóttir. Hefur óskað eftir því að laun hennar sem nefndarmanns MÍF verði lækkuð um 15 % til 1. júní 2009.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
12.12.2008 | 23:06
Hvað erum við að kvarta um bruðl?
Umframt ríkisumboðsmannin Dan Knudsen og íslendska sendiharran
Eiður Gudnason eru í løtuni
12 konslar í Føroyum:
Annfinn V. Hansen, týskur aðalkonsul
Árni O. Dam, rusiskur aðalkonsul
Bjørn á Heygum, svenskur aðalkonsul
Dennus Hentze, brasilskur konsul
JohanPáll Joensen, estlendskur konsul
Julianna Klett, franskur konsul
Julianna Leonsson, hollendskur konsu
Magni Arge, italskur konsul
Petur Even Djurhuus, norskur aðalkonskul
Poul Michelsen, finskur aðalkonsul
Tummas Hanus Dam, bretskur konsul
Uni Danielsen, grikskur konsul
Færingar eru um 48 þúsund.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.12.2008 | 12:55
Nýr alíslenskur jólasveinn - Bankaskellir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.12.2008 | 10:42
Siðleysið algjört
![]() |
Skuldabréf eigenda 20% af sjóð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.12.2008 | 09:01
Ekkert kynlíf takk, við erum bresk
En aðeins meira. Munið þið eftir sjónvarpsþáttunum með Gesti Einari þar sem meðal annars var spurt um ástarlíf fólks. Auðvitað óformleg könnun en var samt birt þegar þáttunum lauk. Þá kom í ljós að Egilsstaðabúar gerðu það sjaldnast, eða að meðaltali 1.8 sinnum í viku. Mig minnir að Húsvíkingar hafi gert það oftast. En hvað um það, mér datt þetta í hug:
*
Illt mér þætti að fara að hátta
eins og asna, utangátta.
Ætla ástar að njóta
en um hugsanir hnjóta;
hvort var ég búinn með 1 eða 1.8Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.12.2008 | 10:10
Lélegastur
![]() |
Vissi ekki um tilboð Breta vegna Landsbankans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.12.2008 | 11:57
Og sjá...
![]() |
Davíð: Þá mun ég snúa aftur" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.12.2008 | 12:37
Burt með útvarpsstjórann
Ég vil reka útvarpsstjórann, Pál Magnússon. Hann á ekkert erindi í útvarp allra landsmanna.
Í áskorun sem ferðaþjónustuaðilar á Norðurlandi sendu á forsvarsmenn Ríkisútvarpsins er sú ákvörðun Páls Magnússonar, útvarpsstjóra, að leggja niður svæðisútvarp landshlutanna harðlega gagnrýnd. Þar segir meðal annars: ,,Að leggja svæðisútvarpið niður er gróf aðför að íbúum landsbyggðarinnar og klár skerðing á þjónustu við fyrirtæki á landsbyggðinni. Ef áform útvarpsstjóra ná fram að ganga er í raun verið að setja heftiplástur yfir munn landsbyggðarinnar, skerða lífskjör, tækifæri og sjálfstæði okkar".
Þetta er alveg rétt og með öllu óskiljanlegt það vald sem útvarpsstjóri hefur, sem er nánast ótakmarkað eftir að Ríkisútvarpið, útvarp allra landsmanna var gert að OHF. Við hérna fyrir austan munum vel hvað við misstum mikið þegar Stöð 2 hætti þjónustu sinni hér eystra og nú þegar útvarpið okkar, eigum við ekki að segja að svo sé, hættir landsbyggðarþjónustunni.
Það er einn jákvæður punktur í þessu, kannski rennur tími héraðsfréttablaðanna upp aftur. Það væri vel því þar er sagan skráð, hún er að hluta til hjá útvarpinu en verður aldrei það sem héraðsfréttablöðin voru.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.12.2008 | 20:41
Til hamingju með daginn
Er ekki rétt að byrja á því að óska þjóðinni til hamingju með 90 árin. Vonandi er þess minnst með viðeigandi hætti og allt tal um inngöngu í ESB hljóðni. Innganga okkar í ESB er fullt afsal á sjálfstæði þjóðarinnar, um það þarf enginn að efast.
Er ekki í neinu bloggstuði en ætla samt að eins að láta vita af mér. Hef eytt nokkrum dögum í skemmtanir, át og leti. Fór til Akureyrar og var það í nokkra daga. Var heilan dag á náttfötunum einum fata eftir heimkomuna. Fór svo í gær á aðventutónleika Kórs Fjarðabyggðar, ásamt barnakórum frá Eskifirði, Norðfirði og Reyðarfirði, að þeim ógleymdum Diddú og Agli Ólafssyni. Frábær skemmtun fyrir troðfullri kirkju- og menningarmiðstöð.
Inga T diskurinn kom loksins í hús í gær, réttara sagt nokkrir tugir diska en aðalsendingin hefur væntanlega komið í dag. Gerði svolítið af auglýsingum og jólakortum í dag og ætla að fara annað kvöld í Egilsbúð þar sem SÚN mun úthluta styrkjum, væntanlega til menningar- íþrótta- og tómstundamála. Svolítið öfugt við það sem er að gerast í þjóðfélaginu, sem sagt ekkert krepputal.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.11.2008 | 22:45
Hver er Gréta Ingþórsdóttir?
![]() |
Aðgerðir kynntar eftir helgi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Vangaveltur
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.8.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 160870
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar