Við vorum ágæt...

Mér finnst þetta sanna best að þetta fólk hefur aldrei ætlað sér að setjast hér að. Það fékk vinnu og hefur safnað peningum til að geta komið sér vel fyrir í sínu heimalandi. Stærstur hluti þeirra hefur ekki tekið þátt í samfélaginu – að vinnunni undanskilinni og ég get ekki verið sammála að margir þeirra tali reiprennandi íslensku. Haft er eftir ræðismanni þeirra að “að það ekki þess virði lengur að vera um kyrrt, fyrir nokkrum árum hafi þau getað unnið sér inn fimm- eða sexfalt hærri laun en í Póllandi en nú eru þau aðeins tvöfalt hærri”.
mbl.is Hópast heim til Póllands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Þetta er alveg eins og Íslendingar sem flytjast út í kreppu hér heima og setjast að í Svíþjóð eða annars staðar búa í mörg ár og koma svo heim.

Þeir sem nema úti verða líka oft eftir í því landi og treysta sér ekki heim í brjálið fyrr en þeir eru búnir að koma undir sig fótunum.

Bara núna síðustu ár höfum við orðið svo áþreifanlega vör við þetta hér á landi, sem er að hluta til hvað við erum fámenn.

Bara í DK búa í kringum 5-6 þúsund íslendingar það er eins og heilt Akranes!

Hvað þá alls staðar annars staðar í heiminum. Mér finnst að við Íslendingar eigi langt í land með að sjá og skoða hlutina glópalt og þar með ég líka.

Edda Agnarsdóttir, 30.8.2008 kl. 13:14

2 identicon

Heyrðu mig nú Hulda Elma Guðmundsdóttir
"Róttæk vinstri kona" "og haldin átthagafjötrum."
Ekki veit af hvaða hvötum þú ert með þetta skítkast út í sárasaklaust verkafólk. Þú ert greinilega ekki bara haldin átthagafjötrum heldur líka þeirri brjóstumkennanlegu nesjamennsku og afdalhugsun sem stundu leggst á þá sem aldrei hafa séð útúr eigin r.....si.
Hvað hefðirðu sagt ef allir þessir Pólverjar hefðu verið kjurir á Íslandi nú þegar fyrirsjáanlegt er talsvert atvinnuleysi. Hefði það ekki heitið þá hjá þér vini verkamanna og öreiga: "helvítis pakk sem tekur frá okkur vinnuna eða lifir á atvinnuleysisbótum".
Þeir sem eru svona troðfullir af fordómum og illvilja útí annað fólk finna sér alltaf eitthvað til....

Jón Bragi (IP-tala skráð) 30.8.2008 kl. 16:34

3 identicon

Ekki veit af hvaða hvötum þú ert með þetta skítkast út í sárasaklaust verkafólk, segir þú Jón Bragi. Hvaða skítkast. Eins og Edda bendir á hér að ofan gera Íslendingar þetta sama. Þú hlýtur að vera vera með lesblindu ef þú lest skítkast úr skrifum mínum. Mér er nokk sama um skoðun þína á "brjóstumkennanlegu nesjamennsku og afdalhugsun sem stundu leggst á þá sem aldrei hafa séð útúr eigin r.....si". Eigðu góða helgi.

Elma (IP-tala skráð) 30.8.2008 kl. 16:42

4 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Þér finnst þetta sanna eitthvað Elma, en ég get ekki komið auga á það. Mér finnst þetta ekkert sanna annað en vandræðin sem hér eru í uppsiglinu, sem  heiðarlegt fólk kærir sig ekki um að fara að taka þátt í, telur sennilega með réttu, að við munum eiga nóg með okkur?

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 30.8.2008 kl. 18:28

5 identicon

Jú Elma, ég fer ekki ofan af því að það er einhver leiðindatónn í þessum skrifum þínum. "Mér finnst þetta sanna best að þetta fólk hefur aldrei ætlað sér að setjast hér að". Hvað áttu við með því? Hafði þetta fólk lofað einhverjum því að það ætlaði að setjast hér að um alla framtíð? Ég held ekki. Ekki frekar en þeir Íslendingar sem fóru til Svíþjóðar þegar kreppa var á Íslandi í lok sjöunda áratugarins og fóru flestir heim þegar betur fór að ára á Íslandi.

Er þetta ekki einmitt óskastaða fyrir íslenskt þjóðfélag, að fá þetta fólk hingað til að vinna lægst launuðu skítverkin þegar þörfin á vinnukrafti er sem mest. Fólk sem síðan fer burt þegar vinnan minnkar í stað þess að vera kjurt og taka vinnu frá Íslendingum eða lifa á bótum.

"Eins og Edda bendir á hér að ofan gera Íslendingar þetta sama." Já það var Edda en ekki þú sem bentir á það.

"fékk vinnu","safnaði peningum", "taka ekki þátt í samfélagin", "get ekki verið sammála að margir þeirra tali reiprennandi íslensku.." Ég þekki Íslendinga sem hafa búið hér í Svíþjóð í 30-40 ár og tala vægast sagt slæma sænsku. Sjálfur hef ég búið hér í fimmtán ár og heyrist það um leið og ég opna munninn að ég ekki er innfæddur, og skammast mín barasta ekkert fyrir það.

Ég fer ekki ofan af því að það er einhver leiðindatónn í þessu innleggi þínu sem ég kann illa við og mér finnst ekki sæma manneskju sem kallar sig vinstri róttæka.

Mér finnst hreinlega að þú ættir að taka út þessi skrif þín. En hafðu það gott um helgina samt!

Jón Bragi (IP-tala skráð) 30.8.2008 kl. 20:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vangaveltur

Höfundur

Hulda Elma Guðmundsdóttir
Hulda Elma Guðmundsdóttir
Róttæk vinstri kona. Er fædd og uppalin í Neskaupstað - ekta Nobbari og haldin átthagafjötrum. Er íþrótta- og félagsmálafrík og elska ferðalög.

Tónlistarspilari

Elvis Presley - Blue Christmas

Nýjustu myndir

  • goðanes
  • img471-copy

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 160354

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband