2.11.2009 | 09:33
Skítur á priki
Það er ekki hægt að tala um rausnarskap föðurs og bróðurs Stiegs Larssons til handa fyrrverandi tengdadóttur og mágkonu þeirra. Þeir hrópa á torgum að þeir hafi boðið henni 20 milljónir sænskra króna, en hafa haft af bókasölu og kvikmyndarétti milljarða sænskra króna. Það má segja að þarna hafi tveir menn orðið að aurum apar.
Bjóða sambýliskonu Stiegs Larssons fé | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Vangaveltur
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Kæra Hulda
Feðgarnir bjóða henni 356 milljónir, Áætlaðar tekjur feðganna er 2300 milljónir. Þ.e.a.s. feðgarnir bjóða henni rétt rúmlega 15% af því sem þeir hafa fengið, sem er aðeis meira en "skítur á priki".
Hins vegar er það súrt epli að bíta í, fyrir konuna að erfa ekki sambýlismann sinn til 30 ára, en hvers sök er það?
Hilmar (IP-tala skráð) 2.11.2009 kl. 10:50
Þetta eru ósanngjörn skifti, hver svo sem upphæðin er og má til sanns vegar færa að feðgarnir hafi orðið af aurum apar.
Edda Sigurjonsdóttir (IP-tala skráð) 2.11.2009 kl. 12:19
Skipta aurunum í þrennt og þakka svo pent fyrir sig.
Erna Valdís (IP-tala skráð) 2.11.2009 kl. 12:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.