Höggvið í sama...

Fæðingarorlofið kom flestum til góða en það var líka misnotað. Það var illa útfært og gaf því tilefni til misnotkunar. En í samanburði við hin Norðurlöndin er fæðingarorlofið happafengur miðað við bætur elli- og örorkulífeyrisþegar. Svo ég tali ekki um sjúkradagpeningana. Það er ekkert sem bendir til þess að hér sé félagshyggjustjórn við völd.
mbl.is Fæðingarorlof með því stysta á Norðurlöndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvað meinar þú hér " En í samanburði við hin Norðurlöndin er fæðingarorlofið happafengur.........."?

Simon Georgsson (IP-tala skráð) 30.11.2009 kl. 09:58

2 identicon

Íslendingar eru ótrúlegir.... Þeir vilja mæla sig við norðurlöndin og hafa þeirra félagskerfi en borga skatta og gjöld eins og Ameríkaninn.

persóna (IP-tala skráð) 30.11.2009 kl. 10:48

3 Smámynd: Gísli Gíslason

Það er almennt viðurkennt að Íslenska fæðingarorlofskerfið er einstakt á heimsvísu. Það má sjá yfirlit yfir kerfin hér http://en.wikipedia.org/wiki/Parental_leave.  Stjörnvöld eru ekki öfundsverð að eiga að láta enda ná saman.

Gísli Gíslason, 30.11.2009 kl. 15:53

4 identicon

Íslenska fæðingarorlofskerfið er samt í mýflugumynd samanborið við Danmörku, Svíþjóð og Noreg. Við reynum stöðugt að bera okkar velferðarkerfi við kerfi þessara landa, en fátt stenst samanburð.

Simon Georgsson (IP-tala skráð) 30.11.2009 kl. 20:09

5 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Hvað er misnotkunn á fæðingarorlofi Hulda. Félgshyggjustjórnin sem nú er við völd er með þvílíkann bagga í fanginu að við finnum öll fyrir honum, sem ekki er skrítið.

Þú segir rétt Gísli, okkar útfærsla þykir einstok

Hólmfríður Bjarnadóttir, 1.12.2009 kl. 01:26

6 identicon

Verð bara að spyrja: Hvað er það sem gerir íslensku útfærsluna einstaka?

Ekki er það lengd fæðingarorlofs og ekki er það möguleiki beggja foreldra á orlofi, enda þekkist hvortveggja í öðrum löndum.

 Svo eftir stendur spurningin:  Hvað er það sem gerir íslensku útfærsluna einstaka?

Simon Georgsson (IP-tala skráð) 1.12.2009 kl. 13:46

7 identicon

Grunaði það :-)

Fólk er til í að básúna út að hitt og þetta þyki einstakt í útlöndum, en þegar beðið er um rök fyrir fullyrðingunum þagnar allt.

Íslenska fæðingarorlofskerfið þykir ekki einstakt í nágrannalöndunum nema þá vegna þess hversu stutt það er. 

Simon Georgsson (IP-tala skráð) 2.12.2009 kl. 07:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vangaveltur

Höfundur

Hulda Elma Guðmundsdóttir
Hulda Elma Guðmundsdóttir
Róttæk vinstri kona. Er fædd og uppalin í Neskaupstað - ekta Nobbari og haldin átthagafjötrum. Er íþrótta- og félagsmálafrík og elska ferðalög.

Tónlistarspilari

Elvis Presley - Blue Christmas

Nýjustu myndir

  • goðanes
  • img471-copy

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 160439

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband