Færsluflokkur: Bloggar
7.8.2009 | 11:49
Neskaupstaður/Fjarðabyggð - Sandavogur/Vogar
Þrátt fyrir leiðindaveður sem óneitanlega setti svip sinn á mannlífið var heimsóknin úr Sandavogi ánægjuleg og tilhlökkun ríkir nú þegar meðal þeirra sem ætla sér að öllu óbreyttu að heimsækja þessa vini okkar eftir tvö ár.
Þessi samskipti hafa varað í rúmlega 40 ár og eru örugglega einsdæmi og alltaf jafn ánægjuleg. Sumir hafa komið oftar en aðrir en ný vinabönd myndast við hverja heimsókn. Í þetta skiptið komu fleiri að móttökunni en áður að einni annarri ferð undanskilinni og ríkti almenn ánægja meðal þeirra sem komu að þessari móttöku í fyrsta skipti.
Samskiptin eru ekki lengur íþróttalegs eðlis og finnst mér það frekar miður. En það er margt breytt frá upphafinu og nú er þessar heimsóknir meira vinabæjarheimsóknir.
Í lokahófinu á miðvikudagskvöldið voru sungnir íslenskir og færeyskir söngvar og skipst á gjöfum. Borgarstjórinn í Vogi en svo heitir nýstofnað sveitarfélag Sandavogs og Miðvogs, flutti bráðskemmtilega tölu en það var ömurlegt til þess að vita að enginn úr bæjarstjórn Fjarðabyggðar lét sjá sig, hvað þá að sveitarfélögin skiptust á kveðjum og gjöfum. Þetta er í fyrsta skipti frá því að þessi samskipti hófust að bæjarstjórinn, forseti bæjarstjórnar eða einhver úr bæjarstjórninni kemur ekki til lokahófsins. Mér finnst bæjarstjórinn og aðrir forsvarsmenn sveitarfélagins setja ofan vegna þessa. Já eiginlega mega þeir bara skammast sín.Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
1.6.2009 | 10:49
Af hverju heila viku?
Olíufélög svari Neytendastofu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.5.2009 | 18:31
Ertu dönsk eða frönsk ...
Söng gamla þjóðsönginn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.5.2009 | 18:26
Silfur er flottast
Skrítið að jafn-mikil keppnismanneskju og ég er, mér skuli silfur vera fallegri en gull en það er bara svoleiðis. Móttökurnar á Austurvelli í dag voru sambærilegar við móttökur handboltalandsliðsins og er það vel. Við erum náttúrulega bara best og í stórasta landi í heimi.
Evróvisjón á Austurvelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2009 | 18:38
Ég er ekki þannig týpa..
Segir ungur maður sem var tekin fyrir nokkurra kílóa eiturlyfjasmygl í Brasilíu. Hvernig týpa er hann þá?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.5.2009 | 18:12
Hvað með elli- og örorkulífeyrisþega?
Fjármálaráðherra hefur ákveðið að ríkisstarfsmenn fái 25.200 króna orlofsuppbót í júlí líkt og fólk á almennum vinnumarkaði. Fram kemur að fjármálaráðherra hafi hinsvegar viljað stuðla að jafnræði í aðdraganda þjóðarsáttar og því ákveðið að þeir fengju uppbót samkvæmt samningum eins og þeir voru fyrir síðasta ár.
Hvað með elli- og örorkulífeyrisþega?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.5.2009 | 12:13
Bara enn eitt ruglið
Ásókn í íslenskupróf fyrir umsækjendur um ríkisborgararétt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.5.2009 | 09:16
Ekki taka leikföngin af þeim
Nú hefur sannast að gullfiskaminni stjórnmálamanna er raunverulegt. Ekki liðnar tvær vikur frá kosningunum og vinstri flokkarnir þegar farnir að draga í land. Nú á að halda við því, sem útgerðarmaðurinn og sjávarútvegsráðherrann Halldór Ásgrímsson kom á, á sínum tíma, kvótakerfinu. Hvað með allar yfirlýsingarnar um að auðlindirnar séu okkar, fólksins í landinu? Nú þegar útrásarvíkingarnir hafa flúið land, bankastjórarnir komnir í önnur störf, þá á að halda áfram misréttinu. Aumingja útgerarmennirnir, við megum ekki taka kvótann frá þeim. Þá gætu þeir misst sumarhúsin sín á Spáni, sumarbústaðina á vel völdum stöðum, íbúðarhúsið í byggðarlaginu og íbúðina í Reykjavík. Og utanlandsferðunum gæti fækkað. Ekki taka leikföngin af þeim.
Kvótakerfi ekki umbylt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.5.2009 | 21:44
Þetta er skítapakk
Björgólfur ábyrgur fyrir 58 milljörðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.5.2009 | 00:00
Stríðsárasafn í Færeyjum
Bretarnir höfðu mikil umsvif á eyjunum og þúsundir hermanna tóku land á Vogey, byggðu þar bragga og reistu sjúkrahús. Þá byggðu þeir flugvöllinn við Sörvog sem enn er notaður en hefur þó verið talsvert endurbættur.
Þýskar flugvélar slepptu sprengjum sínum víð við eyjarnar og færeyskir sjómenn voru eins og þeir íslensku í lífsháska vegna aðgerða flugvélanna og kafbáta.
Safnið verður opið allt árið og þar má finna marga áhugaverða hluti og myndir sem eru bæði áhugaverðar og lærdómsríkar um þessi mjög svo sérstöku ár í Færeyjum.
Ég tel mig hafa rétt fyrir mér þegar ég segi að sveitarstjórnarmenn í Sandavogi hafi fengið hugmyndina að safninu í Miðvogi þegar þeir skoðuðu Íslenska stríðsárasafnið á Reyðarfirði.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Vangaveltur
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar