Færsluflokkur: Bloggar

Hef ég ekki heyrt þessa setningu fyrr?

Ég er ákafur stuðningsmaður íslenska handboltaliðsins en er samt viss um að leikurinn við dani í dag tapast. Þessi setning við "munum gefa allt í leikinn" var líka sögð fyrir jafnteflisleikina við Austurríki og Serbíu. Það er enginn vafi á því í mínum huga að við eigum frábært landslið í handboltanum en það dugar skammt ef ekki veður leikið betur en í fyrrnefndum leikjum.

Dýr dráttur...

Þetta var dýr dráttur sem aldrei var fenginn. En eru þessir karlar sem fara einir til Tælands ekki bara að ná sér í sex?
mbl.is Kvensamur Íslendingur rændur í Taílandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Margur heldur mig sig

Hugsa sér að þessi maður skuli standa frammi fyrir milljónum manna og halda þessu fram. Og hann á fullt af áhangendum sem trúir - ekki á það góða í manninum heldur - á djöfulinn.
mbl.is „Haíti-búar sömdu við djöfulinn"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bless, bless, Jónína Rós

Þessi yfirlýsing Jónínu Rósar er eins og í gamla dægurlagatextanum hans Bubba; "ekki benda á mig..." Bent er á að hún getur sjálf hætt þingstörfum ef henni líkar ekki það sem þingflokkurinn hennar gerir. Til er fólk sem kvartar og kveinar yfir útvarpi og sjónvarpi, það hefur enn ekki uppgvötað á þessum tækjum er takki til að slökkva á útsendingum. Jónína Rós hefur sennilega ekki uppgvötað þessa takka, já - nei - í atkvæðagreiðslunni á þinginu.
mbl.is Þingmaður skorar á forsetann að segja af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Löng eða stutt hrókering?

Aðeins tveir þeirra stórmeistara sem eru virkir í skák í dag hafa síðustu mánuði teflt kappskákir, þó svo fimm þeirra séu á launum. Hvað á þetta djöfulsins bull að þýða. Þetta og listamannalaunin eru algjörlega úr takti við aðrar greiðslur. Hættið þessum launagreiðslum, bætið hag aldraðra og öryrkja. Árasfjórðungs laun þessa styrkþegar eru eins árslaun elli- og örorkulífeyrisþega frá Tryggingastofnun ríkins.

 


mbl.is Óskýrar reglur um laun stórmeistara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarfnast skoðunar við

Er ekki eitthvað bogið við það að forsvarsmaður félags sem hefur verið gert gjaldþrota eða skuldir þess verið niðurfærðar, að hann geti lofað verulegu fé í rekstur fyrirtækis? Hvaðan koma peningarnir?
mbl.is Nýtt rekstrarfé inn í Ferðaskrifstofu Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott silfur gulli betra - líka í pólitík

Útvarpsþátturinn Harmageddon tilkynnti nú fyrir stundu hver væri skítseiði ársins samkvæmt hlustendum sínum. Björgólfur Thor varð fyrir valinu og fær pappír og mynd að launum. Hann svaraði ekki útvarpsþættinum.

Sigurjón Árnason, einn af höfundum Icesave, varð í þriðja sæti og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fékk silfrið. „Enginn kona hefur fengið jafn mörg atkvæði í þessari kosningu,“ sagði Þorkell Máni annar umsjónarmaður Harmageddon.

Ótrúlega lítil umfjölllun um Þorgerði og Kristján Arason.


Eagle when she flies

Hún er alltaf jafn flott Dolly Parton. Þó hún hafi ekki alltaf verið mín uppáhalds kántrý söngkona þá er hún það í dag. Hún á ótrúlega smelli eins og Eagle when she flies og fæstir vita að lagið sem Whitney Houston söng í kvikmyndinni The bodyguard "I will always love you" er eftir Dolly Parton. 


mbl.is Dolly Parton segist líkjast teiknimyndapersónu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórnin tekin aftanfrá...

Ríkisstjórnin tekin aftanfrá,

forsetinn kom í bakið á ríkisstjórninni...

 

Árni Þór Sigurðsson þingmaður Vinstri-grænna og formaður utanríkismálanefndar segir framkomu Ólafs Ragnars Grímssonar í garð ríkisstjórnarinnar forkastanlega í aðdraganda yfirlýsingar forsetans á Bessastöðum í gærmorgun:

„Í samtölum forseta og forsætisráðherra hafði komið fram ósk um að forsetinn léti ríkisstjórnin vita með einhverjum fyrirvara svo hún gæti brugðist við. Ríkisstjórnin stóð í þeirri trú að það yrði gert. Forsetinn, að mínu viti, kom í bakið á ríkisstjórninni með því að senda yfirlýsinguna á ríkistjórnarfundinn klukkan 11:06, eftir að fréttamannafundur hans hófst á Bessastöðum.

Þá var Bessastaðaleiðin löng… og hnífarnir ganga enn í bakið á mönnum.


mbl.is Sammála um að lágmarka ókyrrð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsetafrúin flúin og forsetinn í djúpum skít

Óhætt er að segja að Ólafur Ragnar Grímsson forseti lýðveldisins, fyrrum félagi minn í pólitík sé einkar laginn við að koma sér á framfæri. Þessi ákvörðun hans í morgun er eitt allsherjar sjónarspil til þess eins fallið að fá umfjöllun í erlendum fjölmiðlum og það hefur honum tekist.Ekki veit ég hvað hann hefur verið að dunda sé undanfarna daga, kannski að púsla.

En þessi ákvörðun hans er einkar ógeðfelld.Með þessum skrifum er ég hvorki að segja að ég sé með eða á móti Icesave, einfaldlega vagna þess að Icesave málið er aukaatriði í þessum fjölmiðlaleik. Málið snýst um egó forsetans og ekkert annað.Þá get ég ekki látið hjá líða að minnast á afstöðu Jónínu Rósar sem kjörin var á þing með fulltingi mínu og annarra í NA kjördæmi. Er hún ekki fulltrúi kjósenda sinna eða er  hún í einleik eins og forsetinn?Guð blessi Ísland.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Vangaveltur

Höfundur

Hulda Elma Guðmundsdóttir
Hulda Elma Guðmundsdóttir
Róttæk vinstri kona. Er fædd og uppalin í Neskaupstað - ekta Nobbari og haldin átthagafjötrum. Er íþrótta- og félagsmálafrík og elska ferðalög.

Tónlistarspilari

Elvis Presley - Blue Christmas

Nýjustu myndir

  • goðanes
  • img471-copy

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband