Þegar ég sá hann

Það var Tyrkneskt kvöld. Matur að hætti innfæddra sem og hljóðfæraleikur og dans – magadans. Mér finnst tónlistin þeirra lítið spennandi, alltof hávær og strengjaískur. Að borðhaldinu loknu tók við vestræn tónlist, rómantísk lög meðal annars með Eagles og fleiri góðum hljómsveitum.

*

Þá tók ég eftir honum, hann horfði á mig eins og ég væri ein í heiminum, svei mér þá ef ég roðnaði ekki. Reyndi að láta sem ekkert væri en verð að viðurkenna að hjartað var á fullu. Þegar ég leit næst á hann gekk hann til mín og bauð mér upp í dans. Ég var eins og í spennutreyju í örmum hans og mér var stýrt af öryggi í dansinum. Hann var hærri en ég, vitanlega svarthærður með svört leiftrandi augu með óræðu bliki í, tennurnar eins og perlur og varirnar fagrar og kyssilegar. Hann angaði af austrænum höfgum ilmi, einhvers konar muskilmi, sem fékk mig til að skjálfa.

*

Hver dansinn tók við af öðrum. Það var heitt inni svo við gengum út. Hvorugt okkar hafði sagt orð. Úti voru borð, stólar og bekkir og við settumst á einn þeirra. Ég var hrædd um að hann heyrði hjartsláttinn í mér. Hann sneri sér að mér, tók báðum höndum um vanga mína og strauk létt yfir varir mínar og hálfopnaði þær. Ég var týnd í heimi óþekktra ástríðna. Um leið og varir okkar mættust leit ég í svört augu hans og mundi um leið hvaða lag Eagles hafði verið að spila; Lyin’ Eyes.

*

Þá hringdi helvítis vekjaraklukkan.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Stella Rán

Stella Rán, 24.10.2008 kl. 16:42

2 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Hahahahah ágætt svona ég ein í Sverige og dóttir mín 39 ára í Tyrklandi að heimsækja einn!

Edda Agnarsdóttir, 24.10.2008 kl. 21:13

3 Smámynd: Hulda Elma Guðmundsdóttir

Þeir hafa aðdráttarafl þessir strákar. Þær voru þrjár þarna úti í Marmaris - að heimsækja.

Hulda Elma Guðmundsdóttir, 24.10.2008 kl. 23:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vangaveltur

Höfundur

Hulda Elma Guðmundsdóttir
Hulda Elma Guðmundsdóttir
Róttæk vinstri kona. Er fædd og uppalin í Neskaupstað - ekta Nobbari og haldin átthagafjötrum. Er íþrótta- og félagsmálafrík og elska ferðalög.

Tónlistarspilari

Elvis Presley - Blue Christmas

Nýjustu myndir

  • goðanes
  • img471-copy

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 160437

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband