13.8.2008 | 08:45
Hvalirnir að útrýma fiskistofnunum
Mér finnst eðlilegt að líkja þessu við það ef risaeðlur væru ennþá til. Þær myndu éta mannfólkið út á gaddinn, éta allt sem að kjafti kæmi og dæju svo. Stóru hvalirnir eru á góðri leið með að útrýma fiskistofnum í Norður-Atlandshafi, og átu sem er aðalfæða fiskistofnanna. Hvalirnir hafa í mörg ár verið stórtækari í fiskveiðum en Íslendingar, ég vil hvalveiðar. Af hverju greinir þessi skýrsla ekki frá því að Bandaríkjamenn eru sennilega mesta hvalveiðiþjóð heimsins, það eru þeir sem veiða smáhvalina í net. Eru þessi samtök kannski í Bandaríkjunum?
![]() |
Hvalastofnar stækka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.8.2008 | 10:13
Margt líkt með kúk og skít
![]() |
Best ef hann færi frá" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.8.2008 | 19:53
Í fótspor bresku hermannanna 1942
Ferðafélag Fjarðamanna er geysilega öflugt félag sem stofnað var í skíðaskálanum í Oddsskarði fyrir 12 árum. Á dagskrá þess eru árlega margar gönguferðir og eitthvað nýtt á hverju ári. Næsta ganga félagsins heitir: Í fótspor bresku hermannanna 1942. Langar mig til að endursegja hér ágrip af sögu þessarar örlagaríku ferðar, en hana setti ég á upplýsingarskilti fyrir Fjarðabyggð 2006.
Mesti mannskaði sem breska herliðið varð fyrir á Austurlandi í síðari heimsstyrjöldinni varð ekki í stríðsátökum heldur í glímunni við íslenskan vetur. Dagurinn 20. janúar 1942 rann upp á Reyðarfirði með stillu og heiðríkju. Fótgönguliðar nýstofnaðrar fjallaherdeildar höfðu þá í nokkra daga beðið þess að veður skánaði svo að þeir gætu spreytt sig í nágrenninu. Liðsforingjar höfðu hlotið þjálfun í sérstökum vetrarherskóla á Akureyri og þennan bjarta morgun lagði stór hópur hermanna, líklega um 70 manns, undir forystu ungs lautinants frá Búðareyri norður Svínadal og ætlaði að ganga um Hrævarskörð til Eskifjarðar. Ekki gekk sú áætlun upp vegna svella og harðfennis neðan undir skarðinu. Þá var ákveðið að halda inn úr Svínadal og um Tungudal og Eskifjarðarheiði. Lengdi þetta gönguna um nokkra klukkutíma miðað við sæmilegar aðstæður. Er líða tók á dag fór veður versnandi, fyrst lagði yfir ískalda hrímþoku og síðan tók að blása af suðaustri með slyddu. Þegar hópurinn náði upp á Eskifjarðarheiði var dagur að kvöldi kominn og skollið á aftakaveður með mikilli ofankomu. Var nú móti veðri að sækja og fór svo að sögn eins þátttakanda (Fred Norton) að hópurinn tvístraðist á leið sinni austur af heiðinni. Fjallalækir voru orðnir sem stórfljót og krapaelgurinn í hné eða meira. Voru margir er hér var komið sögu nær örmagna af þreytu og vosbúð. Veturhús voru þá næsti bær við heiðina norðan ár, grasbýli um 2 km innan við jörðina Eskifjörð og án símasambands. Þar bjó þá Páll Pálsson með Þorbjörgu móður sinni og systkinum. Voru bræðurnir Páll og Magnús, 15 ára, þennan dag í kolauppskipun úti á Eskifirði en mægður í fjárstússi og eldiviðarkroppi inni á dal. Fólk gekk þreytt til náða um tíuleytið um kvöldið, en áður Páll sofnaði bætti í veðrið svo að hann taldi vissara að huga að útihúsum. Á leið til bæjar rakst hann á torkennilega þúst, sem reyndist vera mannvera skríðandi með bakpoka. Var þar kominn einn bresku hermannanna og áður en nóttin var öll yljuðu sér 48 örþreyttir menn og holdvotir í þröngum bæjarhúsunum og nutu aðhlynningar. Voru bræðurnir á þönum úti við að bjarga hermönnum í bæinn og bera inn vatn en systurnar Bergþóra og Kristín hjúkruðu þeim ásamt móður sinni og nærðu eftir föngum. Nokkur lík fundust þá um nóttina og daginn eftir og urðu átta áður en yfir lauk. Í hópi látinna var fararstjórinn. Þverár tvær runnu saman utan bæjar og voru kolófærar fram undir morgun að ekki sé talað um Eskifjarðará. Er dagaði birtist breskur liðsforingi að svipast um eftir félögum sínum og brátt dreif að fólk til aðstoðar frá Eskifirði og var þar á meðal Einar Ástráðsson læknir. Björgunarafrekið sem unnið var við erfiðar aðstæður þessa óveðursnótt, mun seint gleymast.
Helstu heimildir:
Friðþór Eydal: Fremsta víglína, s. 105-110, Reykjavík 1999.Bergþóra Pálsdóttir: Hrakningasaga brekra hermanna á Eskifjarðarheiði.Eskja I, s. 191-194.
Bloggar | Breytt 12.8.2008 kl. 11:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.8.2008 | 08:53
Ekki sama Jón og ...
![]() |
Laun forstjóra Landspítala hækka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.8.2008 | 08:48
Ekki lengur fluga ...
![]() |
Vísindamenn segjast skrefi nær hulinshjálmi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.8.2008 | 09:03
Sigur - en ekki góður leikur
![]() |
Ísland lagði Rússland |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
9.8.2008 | 11:14
Á skítugum skónum
![]() |
Um 20 þúsund manns á fiskisúpukvöldi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.8.2008 | 10:32
Til hvers að vaka...
En sennilega er ég að ætlast til of mikils, en velti því fyrir mér hvort Ol. lágmarkið okkar sé eitthvað annað það sem Ol. nefndin setur. Ef svo er ekki, erum við með frábært íþróttafólk, já og hvort sem er. Við sendum 27 keppendur og 23 þjálfara og aðstoðamenn. Við erum lítil þjóð og sennilega á ég að fyllast stolti þegar ég hugsa til þess að Chile með 16 milljónir íbúa sendir 27 íþróttamenn eins og við.
Ísland best í heimi
![]() |
Ragna slasaðist og er úr leik |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
8.8.2008 | 13:12
Margir kínverjar sprengdir
![]() |
Ólympíuleikarnir settir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.8.2008 | 17:02
Stoppum þennan innflutning
![]() |
Uppselt á ferðamannastaði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Vangaveltur
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.8.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar